Í gærkvöld vann B lið 4. flokks hitt B lið okkar í leik í 8 liða úrslitum. B1 er skipað strákum fæddum 91 en B2 fæddum 92. Lokatölur urðu 32-19 eftir að staðan í hálfleik hafi verið 16-12. Sigurinn var of stór en svo virðist sem B2 hafi ekki átt nægja orku til að klára leikinn á fullu.
Bæði lið geta verið stolt af frammistöðu sinni í gær. B2 lék vel og fóru þar fremstir Anton, Einar, Ingvi, Magnús, Bjarni og Ketill sem allir stóðu sig mjög vel. B2 stóð sig mjög vel í vetur og náði að komast í úrslitakeppnina sem er stórgott hjá þeim og eitthvað sem ekki margir trúðu á. Þeir hafa bætt sig mikið enda berjast þeir á öllum æfingum við tvö lið þar sem allir eru eldri en þeir.
B1 er þá komið í undanúrslit og mætir þar Haukum eða Þór í leik á morgun. Það lið varð deildarmeistari og á góðan möguleika á að komast í úrslit. Það yrði frábært ekki síst í ljósi þess að tveir lykilmenn liðsins hafa gleymt leiðinni í íþróttahúsið og því ekki sést síðan í mars.
