Hótelið bauð handboltaakademíunni í matinn og er þeim þakkað sérstaklega fyrir það. Þá þökkum við fulltrúm BT, SG-Húsa og Landsbankans fyrir að koma á lokahófið en þessi fyrirtæki eru á meðal helstu styrktaraðila handknattleiksdeildarinnar.
Verðlaunin sem voru veitt byggðust á tölfræði leikmanna og stigagjöf þjálfara eftir hvern spilaðan leik. Þessi tölfæðisöfnun hófst í upphafi keppnistímabilsins og stóð til loka keppnistímabilsins og ekki vantar einn einasta leik í vetur.
Afrek ársins í handboltaakademíunni:
Hörður (Sjóli) Másson með 484 mörk í 3., 2. og mfl. og 60% skotnýting.
Verðlaun í 3. flokki :
Markahæstir:
3. Bjarki Már Elísson með 157 mörk (71% nýting)
2. Guðmundur Árni Ólafsson með 170 mörk (62% nýting)
1. Hörður (Sjóli) Mássonmeð 308 mörk (62% nýring)

Framfarir og ástundun:
3. Brynjar Örn Sigurdórsson
2. Halldór S. Haraldsson
1. Ársæll (Sæli) Ásællsson

Varnarmenn ársins:
3. Örn Davíðsson með 179 brotin fríköst (8,1 í leik)
2. Ragnar Jóhannsson með 197 brotin fríköst (9,4 í leik)
1. Einar Héðinsson með 243 brotin fríköst (10,6 í leik)
Á myndina vantar Örn og Einar en Helgi bróðir hans tók við verðlaununum.
Leikmenn ársins:
3. Einar Héðinsson með 42 stig
2. Guðmundur Árni Ólafsson með 44 stig
1. Ástgeir Rúnar Sigmarsson með 53 stig (20 skot varin að meðaltali í leik og 42% markvarsla)
Aftur tekur Helgi við verðlaunum fyrir Einar bróður sinn :)
Verðlaun í 2. flokki:
Efnilegasti leikmaður:
Hörður Másson 21,5 stig (93 mörk og 51% skotnýting)
Leikmaður ársins:
Birkir Fannar Bragason með 22 stig (18 skot varin að meðaltali í leik og 46% markvarsla).
Verðlaun í meistaraflokki:
Markhæstur:
Michal Dostalík með 101 mark
Michal var farinn heim og var því ekki með okkur en kemur aftur í ágúst :)
Varnarmaður ársins:
Baldur Þór Elíasson
Baráttubikarinn sem er gefinn af Ágústi Mortens og Veiðisport þeim leikmanni sem sýnir mesta baráttu, karakter og vilja. Þeim sem gefst aldrei upp.
Þann bikar fékk:
Arnar Gunnarsson
Leikmaður ársins:
3. Hörður (Sjóli) Másson með 26,5 stig
2. Helgi Héðinsson með 29,5 stig
1. Michal Dostalík með 32,5 stig
Michal var farinn heim og var því ekki með okkur en kemur aftur í ágúst :)
Við þökkum þar með öllum sem studdu okkur fyrir góðan handknattleiksvetur og bjartri framtíð.
Áfram Selfoss
