Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

8.10.2007 | Handbolti

Dramatískt tap fyrir Akureyri í Bikarkeppninni

Í gærkvöldi heimsóttu Akureyringar okkur á Selfoss til að spila í bikarnum. Vel yfir 150 manns mættu á leikinn og létu vel í sér heyra. Selfoss spilaði með sína venjulegu 6-0 vörn með Basta í markinu á meðan Akureyringar léku með framliggjandi 3-2-1 vörn sem setti mikla pressu á Selfoss liðið. Fyrsta korterið í leiknum var frekar markalítið og staðan jöfn 5-5 en stuttu síðar voru Akureyringar komnir í 6-11. Þegar allt virtist glatað ákvað Basti að gera eitthvað í málunum og fór að verja meistaralega. Við það fór allt Selfoss liðið í gang og Ramunas "Rambó" Mikalonis skoraði úr hverju langskotinu á fætur öðru og fyrr en varði voru Selfyssingar búnir að jafna. Háfleikstölur voru 14-13 Selfoss í hag og allt virtist ganga að óskum.

Seinni hálfleikurinn byrjaði hræðilega fyrir Selfoss og Akureyringar komust í 16-20 en þá tók Basti leikhlé. Það virkaði vel og staðan var orðin 20-20 innan skamms. Þá hitnaði mikið í kolunum dómarar og leikmenn gerðu flest mistökin sem til eru í bókinni.  Akureyringar komust í 22-25 en þegar 50 sekúndur voru eftir var staðan 25-25 og Selfyssingar með boltann. Þeir misstu boltann klaufalega og Akureyringar nýttu sér það til fulls og skoruðu. Þegar hér var komið sögu voru aðeins 15 sekúndur eftir og Selfyssingar misstu boltann aftur klaufalega og Akureyringar tryggðu sér 25-27 sigur á Selfyssingum í mjög jöfnum leik.

Bestu leikmenn Selfoss í sókn voru Mikalonis, Hörður Bjarnarson og Dostalík, en í vörninni áttu allir góðan leik og þá sérstaklega Arnar og Baldur. Markaskorar Selfoss voru: Hörður 7, Mikalonis 6, Dostalík 4, Atli 3, Kalendauskas & Gústaf 2 og loks Ragnar 1.
 
Hjá Akureyri var Voru Magnús Srefánsson og Goran Gusic atkvæðamestir í sókn með sitt 7 mörk hvor og Jónatan Magnússon stjórnaði sóknarleiknum eins og herforingi auk þess sem hann var frábær í varnarleiknum.

Heimasíðan spurði Sebastian hvað honum hefði fundist um leikinn að leik loknum:

"Ég er gríðarlega stoltur af strákunum. Þeir börðust allan leikinn og þeir komu ávallt til baka þegar við lentum undir. Þeir trúðu því allan tímann að þeir myndu vinna þennan leik þótt andstæðingurinn væri í Úrvalsdeild. Við fáum tækifæri á því að vinna leikinn og svo annað tækifæri til þess að ná framlengingu en missum boltann tvisvar beint í hendurnar á þeim án þess að ná skoti á markið. Mínir menn frusu bara í lokasóknunum en þetta fer klárlega í reynslubankann"

Hvað fannst þér um Akureyrarleiðið ?

"Akureyrarliðið er vel mannað enda í Úrvalsdeild. Mér fannst við spila frábæra vörn og þeir áttu í miklum vandræðum með að finna leið að markinu. Þá fannst mér við ná að komast vel til baka enda skora þeir ekki nema 1 eða 2 mörk úr hraðupphlaupi"

Hvað gerðist í sókninni ?

"Ég þarf að fara yfir það í vikunni. Vanalega leysum við 3-2-1 vörn mjög vel en spennustigið virðist ekki hafa verið rétt hjá strákunum. Við vorum ekki að spila leikkerfin rétt, þ.e. menn voru of mikið að brjóta sig út úr því sem átti að gera og þá höfðu þeir ekki næga þolinmæði til þess að spila þau í 2 og 3 sjens. Loks þá fannst mér þeir full staðir þegar þeir voru boltalausir"

Eruð þið nógu góðir í Úrvalsdeildina ?

"Það að mæta Úrvalsdeildarliði í Bikarnum er ágætis "test" á því. Í fyrra héldum við út í 45 mín. á móti Akureyri og gáfum þá eftir og ég sagði strákunum þá að við værum bara 75% tilbúnir í þennan pakka. Núna náðum við að halda í við þá nánast allan leikinn.  Það má því segja að við séum 90% klárir en þessi 10% eru erfiðust"

Mjög pólítísk svar þú svarar án þess að svara en er eitthvað að lokum ?

"Ég vill þakka frábæran stuðning áhorfenda annan leikinn í röð. Á meðan við fáum svona stuðning þá munum við vinna alla deildarleiki á heimavelli í vetur"

Heimasíðan hafði fleiri spurningar en hann neitaði að svara spurningum um annað en frammistöðu liðsins í heild, þ.m.t. um hans eigin frammistöðu í leiknum. Við þökkum honum og strákunum fyrir frábæra skemmtun í gærkvöldi.

Áfram Selfoss


Á næstunni


Nýjustu úrslit

  • Ragnarsmótið 2010:

HK - FH 35 : 32 
Haukar - Fram 31 : 24
HK - Selfoss 30 : 31
Haukar  - Valur 23 : 17
Selfoss - FH 26 : 25
Fram -  Valur 25 : 29
1.-2. sæti:          
Selfoss - Haukar 34 : 32
3.-4. sæti:       :  
HK - Fram 38 : 34
5.-6. sæti:          
FH - Valur 24 : 23

Markahæsti leikmaður:
Bjarki Már Elísson, HK
Besti leikmaður mótsins.
Ólafur Bjarki Ragnarsson, HK
Besti markmaður:
Birkir Fannar Bragason, Selfossi
Besti varnarmaður:
Freyr Brynjarsson, Haukum
Besti sóknarmaður:
Bjarki Már Elísson, HK

byko.islyfogheilsa.iswww.olis.iswww.orkusalan.islandsbankinn.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta