HANDBOLTI – Vestmannaeyjaferð 5. flokks 12. – 14. október.
Ágætu foreldrar, forráðamenn
Hér koma drög að dagskrá fyrir fyrirhugaða VM ferð 5. flokks um næstu helgi.
Mæting á Þorlákshafnarbryggju kl. 11:00 föstudaginn 12. október. Þeir foreldrar sem ekki geta komið sínum strákum þurfa að tryggja að þeir hafi far á höfnina. Leikjafyrirkomulag má sjá á vefsíðunni www.hsi.is undir liðnum “mótamál/yngri flokkar.
Heimför er sunnudaginn 14. október kl. 16:00 og er heimkoma til Þorlákshafnar áætluð kl. 18:45. Þangað þurfa foreldrar/forráðamenn að sækja strákana eða tryggja þeim far. Vinsamlegast virðið allar tímasetningar og mætið tímanlega.
Algjörlega nauðsynlegt er að láta þjálfara vita ef einhver forföll verða.
Nauðsynlegur búnaður í ferðina er:
Svefnpoki/ Koddi
Vindsæng/Dýna
Handboltafötin og skórnir
Selfossgalli
Handklæði, sápa/sjampó
Tannbursti
Sundföt (ef tækifæri gefst til)
Lesefni/afþreying
Aukaföt - ATH að merkja vel allar flíkur.
BARÁTTUANDINN OG GÓÐA KEPPNISSKAPIÐ J
Allur farangur á að vera í einni tösku – ekki plastpokum
Kostnaður við ferðina er kr. 7.500,- á dreng. Innifalið í því er þáttökugjald, fargjald milli lands og Eyja, gisting, morgunverður, nesti og sameiginleg máltíð. Greiða á gjaldið inn á reikning nr. 586-26-1679, kt. 050873-5369 eigi síðar en fimmtudaginn 11. október nk. Nauðsynlegt að láta nafn hvers stráks koma fram í skýringu með greiðslu.
Við biðjum foreldra/forráðamenn að taka tillit til þess að þjálfarar og fararstjórar hafa ekki tök á að fylgjast með eða taka ábyrgð á eigum strákanna, s.s. gsm símum, ipodum o.þ.h. Þá eru foreldrar beðnir um að takmarka vasapening við kr. 1.000,- fyrir helgina. Nóg verður af mat og drykk. Í för verður nesti, s.s. brauð, jógúrt, álegg, pylsur o.fl. Þá verður pöntuð pizza sameiginlega á laugardagskvöldið.
Þeir foreldrar sem hyggjast fara með eða kíkja við en hafa ekki gefið sig fram eru beðnir um að hafa samband við einhvern af neðantöldum:
Símanúmer:
Guðrún - s. 892 0490
Axel - s. 895 7554
Guðjón - s. 891 7376
Guðni þjálfari - s. 867 7301
