Staðan í hálfleik var 10-11 fyrir Selfoss. ÍR byrjaði seinni hálfleikinn af krafti og jafnaði 13-13. Þegar 14 mín. voru eftir af leiknum var staðan orðinn 15-20 fyrir Selfoss og ÍR bara búið að skora 1 mark í tæpar 11 mínútur. Á þessum kafla áttu Arnar og Baldur stórleik í vörninni ásamt því sem Birkir var að verja frábærlega. Allt leit út fyrir að við myndum vinna óvæntan útisigur. Þá upphófst ótrúlegur kafli þar sem allt fór úr skorðum í húsinu. Það byrjaði allt með því að Baldur var rekinn út af í 3. skitpi ásamt leikmanni ÍR fyrir þær sakir einar að segja "hey" þegar ÍR-ingurinn hljóp utan í hann þegar hann var að skipta út af og Baldur á leið í hraðaupphlaup. Vægast sagt óskiljanleg brottvísun hjá þeim báðum. Án Baldurs varð vörnin veikari fyrir og ÍR-ingar fóru að finna leiðir í gegnum hana og þá sérstaklega í hægra horninu þar sem ungur leikmaður fór hreinlega á kostum og skoraði 4 mörk á stuttum tíma. Það sem eftir lifði leiks fóru dómararnir á taugum og ástandið í húsinu var orðið eins og á Gaza svæðinu. Hver dómurinn á fætur öðrum gerði ástandið verra og tímaverðirnir gleymdu meira að segja að setja mark inná töfluna (var leiðrétt eftir leik) og allt á suðupunkti í salnum. Af síðustu 14 mín. voru Selfyssingar með 8 brottvísanir þar af tvisvar 2 leikmönnum færri. Það var því ekki erfitt fyrir ÍR að nýta sér liðsmuninn. Af þessum 8 brottvísunum voru 3 þeirra réttlætanlegar en hinar 5 voru vægast sagt vafasamar og þá sérstaklega 2 af þeim 3 sem Selfoss fékk á síðustu 5 mín. Þriðja brottvísuninn á Michal var óskiljanleg og þá fékk Sebastian annað gula spjaldið sitt fyrir að mótmæla þeirri brottvísun og þar með brottvísun sem er hlægilegt því að hann var líklega rólegasti maðurinn á báðum bekkjunum en fékk gult spjald fyrir bæði mótmælin sín í leiknum á meðan kollegi hans á hinum bekknum gekk berserksgang meira og minna allan leikinn ausandi skömmum yfir dómarana og tímaverðina. Mitt í allri þessari spennu þá voru síðustu mínútur leiksins dramatískar. Leikurinn hnífjafn og bæði lið fengu tækifæri til þess að klára leikinn en að lokum var það Davíð Georgsson sem skoraði síðasta mark ÍR í leiknum og kláraði sigurinn fyrir þá en hann skoraði 13 mörk í leiknum þar af úr öllum 8 vítaköstum. Leikurinn var stórkostleg skemmtun fyrir áhorfendur sem hafa líklega ekki gert ráð fyrir þessum rússíbana fyrir leikinn.
Helstu markaskorarar Selfoss voru Atli með 10 mörk og Mikalonis með 7. Vörnin var frábær og Birkir varði 22 skot.
Hjá ÍR var Davíð með 13 mörk og Sigurjón með 4. Varamarkmaður ÍR varði mjög vel þegar hann kom inná og spilaði ÍR liðið í sjens á mikilvægum kafla í leiknum.
Ég náði tali af Sebastian að leik loknum..
Hvað fannst þér um þennan leik ?
Úff, hvað á ég að segja. Mér finnst að við hefðum átt að vinna hann örugglega eins og hann var að spilast framan af síðari hálfleik. Þrátt fyrir alllt sem gekk á þá fengum við tækifæri til þess að vinna leikinn.
Dómgæslan hallaði frekar á ykkur. Hversu mikinn þátt á hún í tapinu ?
Hún á lítinn þátt. Við höldum ekki haus í bullinu og erum inn á milli að láta reka okkur út af fyrir óþarfa brot auk þess sem við erum að fara með ótal dauðafæri til þess að klára leikinn með sigri.
Þú fékkst samt 2 gul spjöld fyrir mótmæli ?
Já í annað skiptið mótmælti ég því að boltinn var dæmdur af okkur fyrir að taka miðju ólöglega og fékk spjald fyrir frá öðrum dómaranum en hinn sagði að gagnrýnin væri réttmæt. Ég mótmælti svo aftur við 3 brottvísun á Michal og þá gaf hinn dómarinn mér aftur gult spjald án þess að átta sig á því að ég var búinn að fá gult. Ég held að hann hefði ekki gefið mér gult ef hann hefði vitað að ég væri á gulu spjaldi.
Af öllum 11 brottvísunum af hverju mótmæltirðu þessari ?
Vegna þess að ég er orðinn verulega þreyttur á því að þjálfarar og leikmenn annara liða séu sífellt grenjandi undan Michal. Honum er misþyrmt í hvert skipti sem hann fær boltann. Hann er rifinn niður, honum er hrint eða haldið og oft af meira en einum leikmanni en fær nánast aldrei víti eða brottvísun á andstæðinginn og svo ætlast menn til þess að hann sé bara sáttur við þetta. Við erum búnir að spila 3 leiki á tímabilinu og við sitjum uppi með 3 ónýta búninga eftir það. Það er ekki útaf engu sem við þurfum nýjan búning á hann í hverjum leik. Hver er svo niðurstaðan hjá dómurunum það er bara hann sem á að vera rekinn útaf fyrir leikbrot af því að allir kvarta svo mikið undan honum en hvað með öll grófu brotin á honum ?
Niðurstaðan eftir leikinn ?
Ég er bara sáttur. Sérstaklega yfir því að við skulum ná að halda besta liðinu í deildinni niðri. Þeir geta eflaust sagt það að þeir hafi bara átt slakan dag en ég vill líta þannig á það að það sé vegna þess að við leyfðum þeim ekki að spila betur. Við náðum að spila þennan leik alveg eins og við lögðum upp með fyrstu 45 mín. en eftir það misstum við sjónar á okkar leikskipulagi.
Takk fyrir...
Áfram Selfoss
