Beint á leiðarkerfi vefsins

Jólasveinaþjónusta

Árum saman hefur Ungmennafélag Selfoss sinnt ákveðnum þjónustustörfum fyrir jólasveinana þrettán sem búa í Ingólfsfjalli.

Fyrsta laugardag í desember hafa þeir jafnan komið til byggða og heilsað upp á börnin á hótelplaninu um leið og kveikt hefur verið á jólatrénu.

Sveinarnir hafa síðan sinnt ýmsum skyldustörfum eins og að koma í heimsóknir í skóla, leikskóla og fyrirtæki. Upplýsingar um þessa þjónustu má fá í síma 482 2477, 897 6323 eða 893 2092.

Á aðfangadag hafa jólasveinarnir boðist til að fara með jólapakka heim til krakka á Selfossi. Til að nýta sér þá þjónustu þarf að koma pökkunum í Tíbrá, félagsheimili Umf. Selfoss, Engjavegi 50 (við íþróttavöllinn), á Þorláksmessu 23. des. kl. 18:00 - 21:00. Hver sending kostar kr. 1.000 á fjölskyldu.

Gleðileg jól!


Á næstunni

10.2.2012 | Handbolti
10.2.2012 | Handbolti
18.2.2012 | Handbolti
18.2.2012 | Handbolti
18.2.2012 | Knattspyrna
19.2.2012 | Handbolti

errea.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta