Beint á leiđarkerfi vefsins

Júdó

Júdó - RSS

25.5.2008 | Júdó

Ađ loknu Vormóti JSÍ

Þann 16. maí síðastliðinn var Vormót JSÍ haldið í æfingaaðstöðu Ármanns í Laugardalnum.  Mótið hafði upprunalega átt að vera um Hvítasunnuhelgina en var frestað.  Nokkuð færri keppendur mættu á mótið en undanfarin mót vetrarins.  Mæting af hálfu Júdodeildar Umf. Selfoss var einnig fremur dræm.  Engu að síður náðist ágætur árangur hjá þeim sem tóku þátt.  Eftirfarandi keppendur deildarinnar fengu verðlaun:

1.5.2008 | Júdó

Ţrír strákar úr júdodeild valdir í landsliđiđ

Þrír iðkendur úr júdodeild Umf. Selfoss hafa verið valdir til að keppa fyrir Íslands hönd á Norðurlandamóti unglinga í júdo 2008. Mótið verður haldið verður dagana 31. maí og 1. júní næstkomandi. Þeir sem njóta þessa heiðurs eru þeir Þór Davíðsson, Matthías Harðarson og Sturlaugur Eyjólfsson.

1.5.2008 | Nýjustu fréttir

37.000 heimsóknir á heimasíđuna í apríl

Samkvæmt nýrri mælingur voru yfir 37.000 heimsóknir á heimasíðu félagsins umfs.is í aprílmánuði. Að meðaltali eru þetta 1.236 heimsóknir á síðuna á dag sem verður að teljast harla gott hjá íþróttafélagi eins og Umf. Selfoss. Samkvæmt tölfræðinni voru síðuflettingar yfir 95.000.

Á nćstunni



Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta