Beint á leiđarkerfi vefsins

Júdó

Júdó - RSS

28.12.2009 | Nýjustu fréttir

Uppskeruhátíđ ÍTÁ 2009 - ţriđjudaginn 29. des.kl. 20:00

Árborg_merkiHin árlega uppskeruhátíð Íþrótta- og tómstundanefndar Árborgar verður haldin í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands þriðjudaginn 29. des. kl. 20:00. Þar verða afhentir styrkir úr Afreks- og styrktarsjóðum Árborgar og íþróttafélaganna, þ.e. Umf Selfoss, Íþf. Suðra og Íþr. FSu. Hvatningarverðlaun verða veitt, afhentir styrkir fyrir afburðaárangur og jafnframt tilkynnt um kjör íþróttakonu og íþróttakarls árborgar 2009. Boðið verður upp á skemmtiatriði og kaffiveitingar. Allir eru velkomnir.

14.12.2009 | Júdó

56 keppendur skráđir til leiks á HSK-móti í júdó

HSK-mótið í júdó var haldið í júdósal UMFS 10. desember s.l. Alls voru 56 keppendur skráðir til leiks, 54 frá UMFS og 2 frá UMFL. Mörg góð tilþrif sáust á mótinu, þá sérstaklega hjá yngsta hópnum 6-10 ára. Eru þar margir efnilegir júdómenn á ferð. Athygli vakti árangur Sturlaugs Eyjólfssonar sem er einungis 16 ára, en hann náði 2. sæti í +81 kg. 15 ára og eldri. En úrslit urðu eftirfarandi.

24.11.2009 | Júdó

Góđ ferđ júdómanna til Akureyrar

Sex kepppendur frá júdódeild Umf. Selfoss kepptu á kyumóti á Akureyri 14. nóvember s.l. Stóðu þeir sig frábærlega jafnt innan vallar sem utan. Allir komu heim með verðlaun, en afrakstur ferðarinnar var 3 gull, 1 silfur og 2 brons. Árangur einstakra júdómanna var eftirfarandi:

24.11.2009 | Nýjustu fréttir

Hádegisfundur ÍSÍ - Ungt fólk 2009

ÍSÍ_merkiHádegisfundur ÍSÍ verður haldinn föstudagurinn 27. nóv. Jón Sigfússon framkvæmdastjóri og Álfgeir Logi Kristjánsson rannsóknarstjóri hjá Rannsóknum og Greiningu við HR munu fara yfir rannsóknina Ungt fólk 2009 og rýna í þá þætti sem snúa að íþróttum og/eða íþróttaiðkun. Fyrirlesturinn verður í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal frá kl. 12.00-13.00. Hann er ókeypis og öllum opinn á meðan húsrúm leyfir.

5.11.2009 | Nýjustu fréttir

Ungmennaţing Árborgar verđur í Pakkhúsinu 8. nóvember

UngmennaþingSunnudaginn 8. nóvember kl. 14:00 verður ungmennaþing Árborgar haldið í Pakkhúsinu, ungmennahúsi Árborgar að Austurvegi 2b, (fyrir aftan bókasafnið). Þingið er ætlað öllum ungmennum í Árborg á aldrinum 13 - 30 ára. Markmið þingsins er að skoðanir ungmenna úr öllum byggðarkjörnum Árborgar komi fram. Niðurstöður þingsins verða síðan afhent bæjarstjórn Árborgar.  Yfirskrift þingsins er: "Ekki sitja heima og röfla, komdu þinni skoðun á framfæri". Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæjarstjóri Árborgar og Gylfi Þorkelsson, bæjarfulltrúi og formaður íþrótta- og tómstundanefndar munu ávarpa þingið. Boðið verður upp á léttar veitingar. Allir velkomnir

23.10.2009 | Nýjustu fréttir

Góđur stuđningur úr Verkefnasjóđi HSK

HSK_merkiStjórn Verkefnasjóðs HSK tilkynnti nýlega úthlutun úr sjóðnum í ár. Alls bárust 63 umsóknir til sjóðsins og af þeim fengu 55 úthlutað styrk. Umf. Selfoss sendi inn 29 umsóknir og fengu 26 styrk. Góður fengur er í stuðningi verkefnasjóðsins sem kemur sér vel fyrir félög og einstakar deildir þegar kreppir að á auglýsinga- og styrkjamarkaði.

16.10.2009 | Nýjustu fréttir

Fjarnám ÍSÍ í ţjálfaramenntun hefst 2. nóvember

ÍSÍ_merkiHaustannarfjarnám ÍSÍ hefst mánudaginn 2. nóvember næstkomandi. Um er að ræða 1. stig almenns hluta þjálfaramenntunar ÍSÍ sem gildir jafnt fyrir allar íþróttagreinar. Námið tekur 8 vikur og jafngildir íþróttafræði 1024 í framhaldsskólakerfinu. Námið er öllum opið 16 ára og eldri sem áhuga hafa á þjálfun í einhverri íþróttagrein. Hlé verður gert á náminu frá miðjum desember og fram í janúar.  Lokaverkefni verður ekki skilað fyrr en á nýju ári. 

14.10.2009 | Júdó

Byrjendanámskeiđ fyrir fullorđna í júdó

Júdódeild Umf. Selfoss mun standa fyrir byrjendanámskeiði í júdó fyrir fullorðna (old boys). Æfingar fara fram í júdósalnum Gagnheiði 3 á mánudögum kl. 21:00-22:00 og fimmtudögum kl. 20:30-21:30. Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Tryggvi í síma 863 3040. Því má svo bæta við að jódódeild getur bætt við iðkendum í 6-8 ára aldursflokki.

12.10.2009 | Júdó

Eitt gull, ţrjú silfur og eitt brons á haustmóti JSÍ

JSI_logoJúdódeild Umf. Selfoss sendi nokkra keppendur á haustmót Júdósambands Íslands sem haldið ver 3. október s.l. Þórdís böðvarsdóttir, sem nú keppir undir merkjum UMFS, náði bestum árangri er hún sigraði glæsilega í sínum flokki. Eftirtaldir náðu verðlaunasætum:

28.8.2009 | Júdó

Judoćfingar hefjast 1. september

Æfingar júdódeildar hefjast þriðjudaginn 1. september í æfingahúsnæðinu í Gagnheiði 3. Yfirþjálfari er Bergur Pálsson. Æfingum er skipt í fjóra aldurshópa, 6-8 ára, 8-10 ára, 11-14 ára og 15 ára og eldri. Byrjendur á öllum aldri eru velkomnir. Æfingatíma má sjá hér að neðan...

14.8.2009 | Nýjustu fréttir

Veglegir styrkir frá heiđursfélaga

Hafst_03Fimmtudagskvöldið 13. ágúst var haldið veglegt hóf í Tíbrá, félagsheimili Ungmennafélags Selfoss. Það var Hafsteinn Þorvaldsson, heiðursfélagi Umf. Selfoss, sem stóð fyrir hófinu. Hófið var m.a. haldið til að heiðra minningu eiginkonu hans Ragnhildar Ingvarsdóttur sem hefði orðið 80 ára þennan dag. Auk fjölskyldu Hafsteins mættu í hófið fulltrúar sjö deilda innan Umf. Selfoss, formaður Umf. Biskupstungna, formaður Umf. Vöku og formaður og framkvæmdastjóri HSK. Hafsteinn afhendi þessum aðilum, tíu talsins, peningastyrk að upphæð 100.000 kr. hver.

4.8.2009 | Nýjustu fréttir

Selfoss útifánar til sölu á skrifstofunni

Lógó SelfossFyrir nokkru kom upp sú hugmynd að bjóða til sölu Selfoss útifána. Þá gætu menn flaggað heima hjá sér á leikdögum eða þegar eitthvað er um að vera hjá félaginu. Nú höfum við komið hugmyndinni í framkvæmd. Hægt er að kaupa fána (1x1,5m) á skrifstofu félagsins. Hvítir fánar með vínrauðu Selfossmerki kosta 4.500 kr. og vínrauðir fánar með hvítu merki kosta 7.500 kr. Nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins s. 482 2477 eða hjá framkvæmdastjóra s. 897 6323.

2.7.2009 | Nýjustu fréttir

Styttist í Landsmót UMFÍ á Akureyri

Landsmót_UMFÍ_2009Nú styttist óðum í Landsmót UMFÍ, en mótið verður haldið á Akureyri dagana 9.-12. júlí næstkomandi. Eyjafjörður mun væntanlega skarta sínu fegursta og verður án efa gaman að koma þangað. Undirbúningur fyrir mótið er á lokastigi. Heimamenn hafa lagt mikinn metnað í mótið og verður öll aðstaða til fyrirmyndar. HSK mun senda öflugt keppnislið á Landsmótið og tekur þátt í 16 af 20 keppnisgreinum. Margir Selfyssingar eru í liði HSK, en alls munu um 200 keppendur víðs vegar af Suðurlandi keppa fyrir sambandið. Í veglegu Landsmótsblaði HSK, sem fylgir með Sunnlenska fréttablaðinu í dag, má sjá lista yfir alla keppendur.

1.7.2009 | Nýjustu fréttir

Góđ ađsókn í íţrótta- og útivistarklúbbi barna

Íþróttaklúbbur_4Starfsemi íþrótta-og útivistarklúbbsins í sumar hefur gengið mjög vel. Námskeiðin sem eru fjölbreitt hafa verið mjög vel sótt og fá börnin að prófa hinar ýmsu greinar undir leiðsögn góðra þjálfara. Farið er í handbolta, frjálsar, júdó, fimleika, fullt af leikjum, í sund og svo er alltaf skemmtielg lokaferð í seinni vikunni. Hvert námskeið stendur í tvær vikur en einnig er hægt að hafa börnin í eina viku í senn. Meðfylgjandi myndir eru úr síðustu lokaferð.

9.6.2009 | Nýjustu fréttir

Velferđarsjóđur barna styrkir Íţrótta- og útivistarklúbbinn

velferðarsjóður barnaÍþrótta- og útivistarklúbbur Umf. Selfoss hlaut í gær myndarlegan styrk úr Velferðarsjóði barna. Styrkurinn verður notaður til að niðurgreiða námskeiðin sem haldin verða í sumar. Er það m.a. gert til að tryggja börnum jafnan aðgang að námskeiðunum. Sveitarfélagið Árborg leggur verkefninu til fjármagn sem er liður í þjónustusamningi við Ungmennafélagið. Auk þess tengist það Vinnuskóla Árborgar. Klúbburinn er samstarfsverkefni allra deilda félagsins og veitir um 17 ungmennum vinnu í sumar.

24.4.2009 | Júdó

Árný međ gull á vormóti JSÍ

Árný_apríl_2009Á vormóti Júdosambands Íslands í eldri flokkum, sem haldið var 4. april síðastliðinn kepptu nokkrir keppendur frá Júdodeild Selfoss. Þar bar hæst sigur Árnýjar Helgadóttur í sínum flokki. Árný hefur æft vel undanfarin ár og er vaxandi júdokona.

31.1.2009 | Júdó

Tvö gull, ţrjú silfur og átta brons á Afmćlismóti JSÍ

Sturlaugur á verðlaunapalliAfmælismót JSÍ var haldið 25. janúar síðastliðinn.  Júdodeild Umf. Selfoss sendi tuttugu keppendur til leiks og varð árangur þeirra góður í það heila. Þó máttu sumir sigursælir keppendur deildarinnar, sem hafa oftast unnið sína aldursflokka, sætta sig við að vera annarstaðar á verðlaunapallinum í þetta skiptið. Úrslit urðu eftirfarandi:

22.1.2009 | Júdó

Nýtt fréttabréf júdódeildar komiđ á vefinn

Foreldraráð Júdodeildar hefur gefið út sitt fyrsta fréttabréf og sent rafrænt á félagsmenn. Fréttabréfið er einnig að finna hér á netinu.  Fréttabréf janúar 2009

14.1.2009 | Nýjustu fréttir

Sýndu hvađ í ţér býr

NámskeiðsteikningMiðvikudaginn 21. janúar næstkomandi verður haldið félagsmálanámskeið í Tíbrá sem ber yfirskriftina "Sýndu hvað í þér býr". Farið verður í ýmsa þætti er tengjast ræðumennsku, fundahöldum og félagsmálastörfum. Námskeiðið er einungis ein kvöldstund þ.e. frá kl. 18:00-22:00. Framkvæmdastjórn Umf. Selfoss hefur ákveðið að bjóða öllum félögum í Umf. Selfoss frítt á námsekiðið. Sjá nánar... 

8.1.2009 | Júdó

Myndir af HSK-mótinu í júdó komnar á Netiđ

Nú eru 60 myndir af HSK-mótinu í júdó komnar á Netið á slóðinni: http://picasaweb.google.com/Judodeild.umfs  . Þar má sjá mörg brosandi andlit og skemmtileg tilþrif.

5.1.2009 | Júdó

Gleđlegt nýtt ár

Júdodeildin óskar öllum gleðilegs nýs árs og þakkar iðkenndum og velunnurum deildarinnar
fyrir samstarfið á liðnu ári.

Judoæfingar hefjast að nýju 8. janúar í íþróttahúsinu Gagnheiði 3, Selfossi
Yfirþjálfari: Bergur Pálsson sími: 862 0858

Æfingar fyrir 7 - 10 ára ................þri. og fim. kl. 17.00 - 18.00
Æfingar fyrir 11-14 ára .................þri. og fim. kl. 18.00 - 19.00
Æfingar fyrir 15 ára + ..................þri. og fim. kl. 19.00 - 20.30
                                                    og mán. kl. 19.30 - 21.00
Æfingar f/ fullorðna byrjendur .......þri. og fim. kl. 20.30 - 22.00

Þátttökugjald 3.200 kr. á mánuði fyrir 14 ára og yngri, 4.200 kr. fyrir 15 ára + og 3.500 fyrir eldri byrjendur. Skráningar á staðnum. Tveir kynningartímar ókeypis.
Byrjendur á öllum aldri sem og lengra komnir eru alltaf velkomnir.

Judodeild UMFS
www.umfs.is/judo
judodeild.umfs@gmail.com

 


Á nćstunni



Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta