Afmælismót JSÍ var haldið 25. janúar síðastliðinn. Júdodeild Umf. Selfoss sendi tuttugu keppendur til leiks og varð árangur þeirra góður í það heila. Þó máttu sumir sigursælir keppendur deildarinnar, sem hafa oftast unnið sína aldursflokka, sætta sig við að vera annarstaðar á verðlaunapallinum í þetta skiptið. Úrslit urðu eftirfarandi:
Miðvikudaginn 21. janúar næstkomandi verður haldið félagsmálanámskeið í Tíbrá sem ber yfirskriftina "Sýndu hvað í þér býr". Farið verður í ýmsa þætti er tengjast ræðumennsku, fundahöldum og félagsmálastörfum. Námskeiðið er einungis ein kvöldstund þ.e. frá kl. 18:00-22:00. Framkvæmdastjórn Umf. Selfoss hefur ákveðið að bjóða öllum félögum í Umf. Selfoss frítt á námsekiðið. Sjá nánar...
Nú eru 60 myndir af HSK-mótinu í júdó komnar á Netið á slóðinni: http://picasaweb.google.com/Judodeild.umfs . Þar má sjá mörg brosandi andlit og skemmtileg tilþrif.
Júdodeildin óskar öllum gleðilegs nýs árs og þakkar iðkenndum og velunnurum deildarinnar
fyrir samstarfið á liðnu ári.
Judoæfingar hefjast að nýju 8. janúar í íþróttahúsinu Gagnheiði 3, Selfossi
Yfirþjálfari: Bergur Pálsson sími: 862 0858
Æfingar fyrir 7 - 10 ára ................þri. og fim. kl. 17.00 - 18.00
Æfingar fyrir 11-14 ára .................þri. og fim. kl. 18.00 - 19.00
Æfingar fyrir 15 ára + ..................þri. og fim. kl. 19.00 - 20.30
og mán. kl. 19.30 - 21.00
Æfingar f/ fullorðna byrjendur .......þri. og fim. kl. 20.30 - 22.00
Þátttökugjald 3.200 kr. á mánuði fyrir 14 ára og yngri, 4.200 kr. fyrir 15 ára + og 3.500 fyrir eldri byrjendur. Skráningar á staðnum. Tveir kynningartímar ókeypis.
Byrjendur á öllum aldri sem og lengra komnir eru alltaf velkomnir.
Judodeild UMFS
www.umfs.is/judo
judodeild.umfs@gmail.com
