Beint á leiđarkerfi vefsins

Júdó

Júdó - RSS

8.3.2010 | Júdó

Tveir Íslandsmeistaratitlar í júdó

Íslandsmeistaramótið í Judo U17 og U20 fór fram laugardaginn 6. mars og fóru 5 keppendur frá Umf. Selfoss. Árangur þeirra var mjög góður en alls komum þeir heim með tvö gull, eitt silfur og þrjú brons.

Í U17 keppti Birgir Aron Ásbjörsson í -66 kg flokki hann vann tvær glímur en tapaði einni og hlaut
annað sætið.
Í U20 keppti Hlynur Víðisson í-73 kg flokki hann vann eina glímu en tapaði tveimur og hlaut því þriðja sætið.
Matthias Harðarsson keppti í -81 kg hann vann eina en tapaði tveimur og hlaut fimmta sætið.
Þór Davíðsson keppti í -90 kg flokki og vann allar sínar þrjár glímur örugglega þar á meðal Sævar Róbertsson sem varð Norðurlandameistari árið 2008, Þór varð því Íslandsmeistari.
Sturlaugur Eyjólfsson keppti í -100 kg flokki. Hann vann allar sínar glímur og varð Íslandsmeistari.
Þór og Sturlaugur kepptu einnig í opnum flokki, Þór vann tvær glímur en tapaði einni á móti andstæðing úr JR sem er 50-60 kg þyngri .
Sturlaugur vann einnig  tvær glímur en tapaði fyrir Sævari úr JR. en þeir hafa verið að vinna hvorn annan síðastliðin tvö ár.
Hlutu þeir Þór og Sturlaugur báðir þriðja sætið í opnum flokki.


Á nćstunni



Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta