28.7.2010 | Knattspyrna
Eins og undanfarin sumur hefur KSÍ verið með frí í leikjum sínum á Íslandsmótinu hjá yngri flokkum vikuna fyrir verslunarmannahelgi og vikuna eftir verslunarmannahelgi. Þetta hefur mælst vel fyrir og knattspyrnufjölskyldur farnar að miða sumarfríið við þennan tíma. Fríið hjá knattspyrnukrökkum byrjar í dag miðvikudaginn 28. júlí og hefjast æfingar aftur mánudaginn 9. ágúst.
26.7.2010 | Knattspyrna
Jafningjafræðsla Hins hússins, Knattspyrnusamband Íslands og Lýðheilsustöð hleyptu af stað átaksverkefninu „Bagg er bögg“ á blaðamannafundi sem að fram fór í höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli 14. júlí s.l. Átakinu er ætlað að sporna við aukinni munntóbaksnotkun hjá ungu fólki, þar sem sérstök áhersla er lögð á unga knattspyrnuiðkendur. Andlit átaksins eru Alfreð Finnbogason landsliðsmaður í knattspyrnu og Sara Björk Gunnarsdóttir landsliðskona í knattspyrnu ásamt jafningjafræðurunum Rúnari Guðbjartssyni og Sigríði Ólafsdóttur, en þau spila einnig knattspyrnu með íslenskum félagsliðum samhliða störfum sínum hjá Jafningjafræðslunni.
Jafningjafræðslan, KSÍ og Lýðheilsustöð frumsýndu á fundinum veggspjöld og bæklinga sem voru hönnuð sérstaklega fyrir átakið. Þessu myndefni verður dreift til íþróttafélaga, skóla og félagsmiðstöðva og Jafningjafræðslan mun einnig halda fræðslufundi um munntóbak fyrir knattspyrnuiðkendur í 2. og 3. flokki í vetur. Hægt er að lesa sig til um munntóbak á heimasíðunum www.lydheilsustod.is/munntobak og www.jafningjafraedslan.is.
24.7.2010 | Knattspyrna
Þá er síðasta færslan að komin frá 3. flokk í knattspyrnu, sem nú er staddur í Svíþjóð á Gothiacup, og ferðin gengið vonum framar. En nú er komið að leiðarlokum, haldið verður frá Svíaríki til kóngsins Köben í birtingu og stefnan tekin á Ísland er sólin rís hæst á himni. Þannig að allir verða komnir til Keflavíkur kl 14.20. Hér að neðan er það sem hæst bar á tveimur síðustu dögunum.
22.7.2010 | Knattspyrna
Hér að neðan má lesa um frækna sigra hjá u-16 Selfoss gegn Brasilíska liðinu Inter Club þar sem þeir tryggðu sæti sitt í 16 liða úrslitum. Eins er umfjöllun um sigur U-15 ára liðsins gegn Bodö frá Noregi þar sem strákarnir tryggðu sér sæti í 32 liða úrslitum, en féllu svo úr leik gegn Franska liðinu Montrouge, sem er undir klúbbur efstudeildarliðsins Montpellier. Þannig að í kvöld mun u-16 ára liðið keppa sinn leik gegn Texas Longhorns frá USA í 16 liða úrslitum, en u-15 ára liðið datt út úr 32 liða úrslitum. Frábær árangur hjá frábærum strákum.
21.7.2010 | Knattspyrna
Mótið gengur rosalega vel og bæði lið komin í 64 liða úrslit sem er frábært. U-15 ára lið vann tvo leiki og tapaði einu í riðlakeppninni og U-16 ára liðið vann einn leik og gerði tvo jafntefli. Samtals því þrír sigrar, tvö jafntefli og eitt tap. U-16 ára vann því sinn riðil og U-15 ára varð í öðru sæti í sínum riðli og komust því bæði lið í A úrslit.
20.7.2010 | Knattspyrna
Allt gengur eins og í sögu hér í Gautaborg hjá strákunum í 3. flokk í knattspyrnu. Netsamband er þó nokkuð óstöðugt, en við notum tækifærið um leið og við komust í samband. Hér að neðan er dagbók yfir síðustu þrjá daga.
17.7.2010 | Knattspyrna
Hin árlega blakkeppni 3. flokks í knattspyrnu fór fram í gær. Stjörnulið Gunna Borgþórs mætti til leiks sem sýningarlið og voru tilþrif þeirra oft á tíðum ótrúleg. Eftir skemmtilegar úrslitaviðureignir fór það þó svo að lokum að lið Samba vann, en það lið skipuðu Markús Vernharðsson, Þórður Sindri Ólafsson, Sindri Pálmason og Þorsteinn Daníel Þorsteinsson.
17.7.2010 | Knattspyrna
Þá er komið að 12. umferð í Pepsídeildinni eða fyrstu umferð í seinni hluta mótsins og byrja Selfyssingar að heimsækja Fylkismenn í Árbæinn. Leikurinn fer fram 18. júlí kl 19.15 á Fylkisvelli. Selfyssingar gerðu jafntefli í síðasta leik gegn Grindavík í Grindavík á meðan Fylkismenn sátu hjá í 11. umferð íslandsmótsins og töpuðu sínum leik í Evrópukeppninni. Selfyssingar eru eftir þetta jafntefli með 8 stig í 10 sæti deildarinnar, en Fylkir er með 12. stig í 9. sæti deildarinnar.