Beint á leiðarkerfi vefsins

Knattspyrna

Knattspyrna - RSS

21.10.2007 | Knattspyrna

Hin hliðin á Sævari Þór

Fullt nafn og gælunafn?
Sævar Þór Gíslason, Speedy, Sæsi.

Aldur?
31 

Fjölskylda?
Í sambandi með Halldóru Sif Jóhannsdóttur. Á einn 9 ára gamlan strák Bjarka Þór Sævarsson

Hvernig tónlist hlustar þú á?
Hlusta á nánast allt

Uppáhalds vefsíða?
Þær eru nokkrar, en mbl.is er vinsæl og pkr.com.

Uppáhalds sjónvarpsefni?
Íþróttir eru í miklu uppáhaldi og spennuþættir.

Uppáhaldsmatur ?
Jólamaturinn hjá mömmu. Kindabjúgu og slátur eru einnig lostæti.

Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta og afhverju?
Ég mætti á mína fyrstu fótboltaæfingu að mig minnir 5 ára gamall, það var bara heillandi að hlaupa og sparka í bolta

Eftirminnilegasti leikur þinn?
Þeir eru svo ofboðslega margir, allir landsleikirnir, bikarúrlitaleikirnir 2 og svo að sjálfsögðu síðasti leikur sumarsins á móti Magna þegar við tryggðum okkur upp eftir 13 ára veru í 2. deild. En ætli landsleikurinn á móti Brasilíu sé ekki einn sá eftirminnilegasti, fyrir framan 55.000 tryllta Brasilíuaðdáendur, og ekki skemmdi fyrir að vera í byrjunarliðinu og það sem hægri BAKVÖRÐUR.

Uppáhalds lið?
Manchester United og Selfoss, ekkert annað sem kemur til greina.

Hvaða liði myndir þú ekki spila með?
Þetta er erfið spurning, en það væri nánast 100% KR.

Hverjir eru þínir helstu kostir?
Heiðarleiki, ákveðinn og metnaðargjarn.

Fyrirmynd í lífinu?
Það er hann pabbi minn.

Hvað kemur þér í gott skap?
Hresst og skemmtilegt fólk, og einnig að vinna Ingó Tóta á æfingum, sem gerist reyndar alltaf þannig að maður er yfirleitt alltaf í góðu skapi.

Hvert er mesta afrek þitt í lífinu?
Hingað til er það sonur minn og svo sigrarnir í Bikarkeppninni 2001 og 2002.

Í hverju varstu bestur í skóla?
Þetta er leiðinleg spurning. Ég var sleipur í enskunni og stærðfræði, og svo að sjálfsögðu íþróttum.

Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta?
Fjölga innáskiptingum í fjóra.

Ef þú yrði að vera einhver annar í einn dag, hver myndir þú vilja vera ?
Þegar Stórt er spurt er lítið um svör.


Á næstunni


olismot.is olis.istoyotaselfossi.isbyko.isset.issamkaup.iskaffikrus.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta