Fullt nafn og gælunafn?
Sigurður Fannar Guðmundsson – Siggi Fannar
Aldur?
36 ára
Fjölskylda?
Eiginkona mín er Þórunn Elva Bjarkadóttir. Sonur minn er Guðmundur Bjarki 8 ára og svo ber konan barn undir belt sem er áætlað að komi í heiminn 7.nóv.
Hvernig tónlist hlustar þú á?
Popptónlist af öllu tagi, er sérstaklega veikur fyrir gamalli íslenskri tónlist.
Uppáhalds vefsíða?
selfossfc.com
Uppáhalds sjónvarpsefni?
Hef mjög gaman af sjónvarpsglápi og þá er fótbolti,golf og íslenskir skemmtiþættir efst á óskalistanum.
Uppáhalds matur?
Jólarjúpan hennar Þórunnar er snilldin ein. Af hversdagsmat þá verð ég að nefna Appelsínugljáða Andarbringu með kavíar og kampavíni í hádeginu og blóðarauðar nautalundir með Rauðvíni og villisveppasósu í kvöldmat.
Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta og afhverju?
Þegar ég var 10 ára. Af því að skólabræður mínir Skúli Már og Stefán Hólmgeirs voru sífellt að státa sig af afrekum sínum á vellinunm og ég vildi mæla getu mína gegn þeim.
Eftirminnilegasti leikur þinn?
Margir mjög eftirminnilegir sumarið sem við urðum 2.deildarmeistar (vantar ártal) undir Stjórn Magna Blöndal. Þar var ég hluti ef góðu liði. Það sumar var hreint frábært og hver leikur eftirminnilegur.
Uppáhaldslið?
Á Englandi er það Arsenal. Á íslandi Selfoss og þar fyrir utan held ég upp á Barcelona og Argentínu. Allt prýðileg lið.
Hvaða liði myndir þú ekki spila með?
Ægi, KR og Albaníu. Ekkert sem heillar við þessi lið.
Hverjir eru þínir helstu kostir?
Ég er jákvæður, áræðinn, útsjónarsamur og bjartsýnn.
Fyrirmynd í lífinu?
Mín helsta fyrirmynd á fóboltavellinum var Maradona en í lífinu hef ég reynt að nýta mér kosti margra mætra manna og kvenna sem ég hef kynnst á lífsleiðinni. Ég hef mikinn áhuga á fólki og reyni að nýta mér þann áhuga til að læra og bæta mig sem manneskju.
Hvað kemur þér í gott skap?
Gott og hressandi símtal við eina af mínum fjölmörgu og skemmtilegu vinum. Einnig á sonur minn oft góðar setningar á morgnanna þegar við eldum saman morgunmat feðgarnir.
Hvert er mesta afrek þitt í lífinu?
Mitta helsta afrek er að kynnast konunni og geta með henni afkvæmi. En af smærri afrekum mætti helst nefna að ná að fullorðnast, það tók soldin tíma.
Í hverju varstu bestur í skóla?
Ég var alltaf bestur í því fagi sem heillaði mig í hvert skiptið. Ég er tækifærissinni sem er einungis góður í því sem ég hef áhuga á hverju sinni.
Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta?
Ég myndi taka harðar á leikaraskap og setja beint rautt sem viðurlag við leikmanni sem er uppvís af leikaraskap.
Ef þú yrði að vera einhver annar í einn dag, hver myndir þú vilja vera?
Það hefði verið magnað að vera Maradona þegar hann lyfti heimsbikarnum í Mexíkó 1986.
