Beint á leiðarkerfi vefsins

Knattspyrna

Knattspyrna - RSS

3.11.2007 | Knattspyrna

Hin hliðin á Viðari Kjartans

vidar_orn_wideFullt nafn og gælunafn? Viðar Örn Kjartansson, Viddi popp. 

Aldur? 17 vetra

Fjölskylda? Foreldrar, Ásdís Hrönn Viðarsdóttir fertug og Kjartan Björnsson (ca. 50 og 60 ára), systkini Hólmfríður (18), Katrín (12), Teitur (2) og Tómas (1).

Hvernig tónlist hlustar þú á? Alæta allt frá Mika niður í Pavarotti.

Uppáhalds vefsíða? www.arsenal.is

Uppáhalds sjónvarpsefni? Ef ekki fótbolti þá, Guiding light eða Jón Gnarr.

Uppáhaldsmatur? Humar og nautakjöt.

Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta og afhverju? Ég var 4 ára vegna þess að ég hefði hvort sem er engu fengið ráðið um það, pabbi dró mig á æfingu.

Eftirminnilegasti leikur þinn? Á Norðurlandamótinu þegar við unnum Finna 5-2, kom inná i hálfleik og skoraði 2 eða Magna leikurinn í ár, hann lifir.

Uppáhaldslið? Gunners.

Hvaða liði myndir þú ekki spila með? Manchester United eða Haukum .

Hverjir eru þínir helstu kostir? Metnaðargjarn, góður að klára færi og yfirsýn.

Fyrirmynd í lífinu? Francesc Fabregas og John Travolta.

Hvað kemur þér í gott skap? Að sjá Ella í sturtu.

Hvert er mesta afrek þitt í lífinu? Komast upp með Selfoss eða á EM undir 17 ára, landsliða get ekki valið á milli.

Í hverju varstu bestur í skóla? Öllum dæmum sem tóku minni tíma en hálfa mínútu, allavega landafræði og íþróttum.

Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta? Mætti fara úr bolnum til þess að fagna án þess að fá gult.

Ef þú yrði að vera einhver annar í einn dag, hver myndir þú vilja vera? Sigurður Fannar og fá að prufukeyra bílinn hans, eða Sigurður Eyberg Guðlaugsson.


Á næstunni


olismot.is set.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta