Fullt nafn og gælunafn?
Dagný Hanna Hróbjartsdóttir, er bara kölluð Dagný
Aldur? 15 ára, verð 16 í janúar.
Fjölskylda? Mamma heitir Hróðný og pabbi Hróbjartur, Óskar eldri bróðir og tvíburasysturnar Karitas og Sigurbjörg 2 ára.
Hvernig tónlist hlustar þú á? Alls konar eiginlega, en er mest hrifin af svona “Fm957” tónlist hehe.
Uppáhalds vefsíða? fotbolti.net og myspace.com, allavega þær sem ég skoða oftast.
Uppáhalds sjónvarpsefni? Klárlega Næturvaktin.
Uppáhalds matur? Allt sem mamma eldar er mjög gott og svo getur verið gott að fara t.d. á Subway inn á milli.
Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta og afhverju? Ég var eitthvað um 7-8 ára og það var út af því að mig langaði að prófa, hef haft gaman af íþróttum síðan ég man eftir mér.
Eftirminnilegasti leikur þinn? Það var ábyggilega minn fyrsti landsleikurinn. Svo var einn leikur í sumar sem við kepptum á móti Fylki og unnum 4-3 það var mjög eftirminnilegur leikur og skemmtilegur.
Uppáhalds lið? Í ensku deildinni er það Manchester United, ekki spurning! Og svo auðvitað Selfoss í íslensku.
Hvaða liði myndir þú ekki spila með? KR
Hverjir eru þínir helstu kostir? Myndi segja metnaðargjörn, samviskusöm og heiðarleg.
Fyrirmyndir í lífinu? Eiður Smári Guðjohnsen og Cristiano Ronaldo.
Hvað kemur þér í gott skap? Það er svo margt, t.d. fjölskyldan, sumt sjónvarpsefni og vinkonur mínar, þær eru ómissandi.
Hvert er mesta afrek þitt í lífinu? Ef það telst til afreks þá setti ég Íslandsmet í 200 m hlaupi þegar ég var eitthvað 12-13 ára, en annars er það ekkert merkilegt hingað til allavega.
Í hverju varstu best í skóla? Ég er enn á fullu í skóla og myndi segja að íslenska, enska og stærðfræði liggi best fyrir mér.
Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta? Ég myndi vilja láta taka harðar á leikaraskap, það er alveg óþolandi.
Ef þú yrði að vera einhver annar í einn dag, hver myndir þú vilja vera? Án vafa einhver í Manchester United og fá að spila einn leik með þeim, helst Rooney eða Ronaldo.
