Fullt nafn og gælunafn? Guðmundur Þórarinsson, Gummi.
Aldur? 15 ára, fæddur í apríl 1992.
Fjölskylda? Anna Guðmundsdóttir, Þórarinn Ingólfsson (Tóti) og Ingólfur Þórarinsson.
Hvernig tónlist hlustar þú á? Bara þetta vinsæla, Muse, Justin Timberlake, Foo Fighters og svo eru Freddy Mercury og félagar í Queen alltaf góðir.
Uppáhalds vefsíða? www.fotbolti.net og www.sirkuz.com
Uppáhalds sjónvarpsefni? Meistaradeild Evrópu, ég þakka þeim manni sem fann upp á þessari keppni innilega vel fyrir. Svo er Næturvaktin að koma sterk inn.
Uppáhalds matur? Ég verð nú oftast mjög glaður þegar að mamma segir að það sé pizza í matinn en kjöt í karrý að hætti mömmu er einnig mjög gott.
Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta og afhverju? Fimm ára gamall, pabbi þjálfaði 3. og 4. flokk á þeim tíma og fékk ég að skottast með á æfingar. Af hverju? Vegna þess að það var í raun auðveldara fyrir mig að fá áhuga á fótbolta heldur en að fá ekki áhuga á fótbolta.
Eftirminnilegasti leikur þinn? Með 2. flokki í sumar þegar að við unnum ÍR 2-1 og ég skoraði úrslitamarkið á 90 mínútu. Að sjálfsögðu er ferðin okkar á Húsavík þegar að við komumst upp um riðil með því að skora sigurmarkið á 94 mínútu á móti Völsungi í úrslitaleik. Það var í einu orði sagt, SNILLD!
Uppáhaldslið? Chelsea og að sjálfsögðu 1. deildar liðið á Íslandi Selfoss.
Hvaða liði myndir þú ekki spila með? Árborg... neee ég veit það ekki.
Hverjir eru þínir helstu kostir? Hress, sjálfstæður og mjög kappsamur (það getur reyndar lika verið galli.)
Fyrirmynd í lífinu? Ingó bróðir (hvernig er hægt að segja einhvað annað). Ég ætla reyndar að reyna að ná lengra en hann í fótboltanum.
Hvað kemur þér í gott skap? Þegar ég kem úr aðfangadagsmessuni og veit að pakkarnir og jólasteikin eru framundan og líka þegar ég kem heim úr síðasta degi skólans og allt sumarfríið er framundan.
Hvert er mesta afrek þitt í lífinu? Það er ekkert sérstakt sem að kemur upp í hugann, en ég er mjög stoltur af því að vera bara þar sem ég er í lífinu í dag.
Í hverju varstu bestur í skóla? Ég er almennt mjög góður og duglegur í skólanum en það getur verið ferlega leiðinlegt í stærðfræði og svona handavinnugreinum.
Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta? Það væri gult, rautt og blátt spjald, en bláa spjaldið væri brottrekstur í 8-10 mínútur, svona svipað og tvær mínútur í handbolta.
Ef þú yrði að vera einhver annar í einn dag, hver myndir þú vilja vera? Ég myndi vera Arsene Wenger og bjóða sjálfum mér samning.
Takk fyrir mig.
