Beint á leiðarkerfi vefsins

Knattspyrna

Knattspyrna - RSS

1.12.2007 | Knattspyrna

Hin hliðin á Gaua Sigurjóns

Fullt nafn og gælunafn? Guðjón Ægir Sigurjónsson – Gaui Sigurjóns

Aldur? Mjög fínn þakka þér – rétt rúmlega 36 ára.

Fjölskylda? Eiginkonan er Þórdís Erla Þórðardóttir, snyrtifræðingur og fyrrverandi bakvörður kvennaliðs Selfoss. Sonurinn er Hjörtur Leó, 13 ára, varnarjaxl og dóttirin Harpa Hlíf 10 ára varnarjaxl. Við förum helst ekki framyfir miðju.

Hvernig tónlist hlustar þú á? Rokk og ról og gæðapopp – U2 er efst á baugi.

Uppáhalds vefsíða? Selfossfc.com

Uppáhalds sjónvarpsefni? Enski boltinn, meistaradeildin og annað íþróttatengt efni.

Uppáhaldsmatur? Er nú ekki mikið fyrir mat, en hæfilega grilluð nautalund er eðalmatur.

Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta og af hverju? Held ég hafi verið 5 – 6 ára. Í minni fjölskyldu var einfaldlega æfður fótbolti – jafnsjálfsagt og að draga andann.

Eftirminnilegasti leikur þinn? Líklega úrslitaleikur um Íslandsmeistaratitil í 4. flokki á Akureyri 1985. Töpuðum naumlega 2-1 fyrir Val.

Uppáhaldslið? Selfoss – hvað annað maður.

Hvaða liði myndir þú ekki spila með? Miðað við ástandið manni í dag myndi maður ekki spila með neinu liði – held þau myndu ekki hleypa manni inná. Held ég myndi líka afþakka boð um leik frá Arsenal.

Hverjir eru þínir helstu kostir? Læt aðra dæma um þá.

Fyrirmynd í lífinu? Foreldrarnir eru náttúrulega fyrirmyndirnar – en konan tók ung við manni og er örugglega búinn að móta mann eins og leir.

Hvað kemur þér í gott skap? Skemmtilegt fólk, sem kann að segja skemmtilega frá.  Skemmtilegur fótboltaleikur er líka helv... hressandi.

Hvert er mesta afrek þitt í lífinu? Getnaður og fæðing barnanna minna.

Í hverju varstu bestur í skóla? Helv... lélegur í smíði – fínn í hinu.

Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta? Mér líkar vel við fótboltann eins og hann er, með kostum og göllum leiksins.

Ef þú yrði að vera einhver annar í einn dag, hver myndir þú vilja vera? Það væri lærdómsríkt að verða konan mín og upplifa hvernig er að búa með mér – það er reyndar spurning hvort maður myndi þrauka heilan dag!!!


Á næstunni


olismot.is olis.istoyotaselfossi.isbyko.isset.issamkaup.iskaffikrus.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta