Beint á leiðarkerfi vefsins

Knattspyrna

Knattspyrna - RSS

8.12.2007 | Knattspyrna

Hin hliðin á Orra

Fullt nafn og gælunafn: Orri Ýrar Smárason

 

Aldur: 37

 

Fjölskylda: Herdís, Arilíus Smári og Ramón.

 

Hvernig tónlist hlustar þú á ?: Er með gífurlega staðnaðan en jafnframt frábæran tónlistarsmekk, Pönk og Heavy Metal! Erum að tala um snilldarbönd eins og Ramones, Pistols, Journey, Boston, Motörhead, Lynard Skynard, Thin Lizzy, Whitesnake, Velvet Revolver, Creedence, Eddie Money, Anti Nowhere League og Fræbbblana svo eitthvað sé nefnt.

 

Uppáhalds vefsíða ?: www.78ta.com

 

Uppáhalds sjónvarpsefni ?: Fótbolti, Kvikmyndir og Heimildarmyndir

 

Uppáhalds matur ?:  Ekkert eitt sérstakt

 

Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta og afhverju ? 6 ára minnir mig. Ég elst upp við mikinn fótboltaáhuga bæði hjá Pabba og svo voru bræður mömmu og aðrir frændur mínir á fullu í þessu svo það var bara eðlilegt og sjálfsagt að byrja sjálfur.

 

Eftirminnilegasti leikur þinn ?: Klárlega leikur með unglingalandsliðinu þegar að við sigruðum Dani 4:3 eftir að hafa verið 0:3 undir eftir 20 mínútna leik. Fyrst sigur Íslendinga á Dönum á útivelli í fótbolta. Svo var líka eftirminnilegt að leika með Ægismönnum í 6:1 sigri á Selfoss í 2. deildinni sumarið 1996.

 

Uppáhalds lið ?: Selfoss og síðan hef ég alltaf taugar til Ægismanna en ég átti nokkur skemmtileg sumur með þeim, síðan fylgist ég að sjálfsögðu með gangi mála hjá Árborg og vona að þeim gangi ávallt sem best. Af erlendum liðum þá er MLS liðið New York Red Bull í mestu uppáhaldi. Síðan mun ég alltaf halda uppá Chelsea þótt ég sé löngu hættur að nenna að fylgjast með ensku úrvalsdeildinni enda hún og allt í kringum hana orðinn einn allsherjar Sirkus sem á lítið skilt við íþróttamennsku því miður.

 

Hvaða liði myndir þú ekki spila með ? Allir fótboltamenn eru málaliðar sem spila bara þar sem þeim hentar best í það skiptið þannig að ég myndi aldrei útiloka neitt lið.............. nema T*ttenh*m.

 

Hverjir eru þínir helstu kostir ? No comment

 

Fyrirmynd í lífinu ? Í fótboltanum voru það klárlega kempur eins og Banks, Clemence, Petar Borota og Pat Jennings sem heilluðu mann í markinu. Í lífinu sjálfu hef ég reynt að tileinka mér góða kosti margra góðra manna og kvenna sem ég hef kynnst í gegnum tíðina.

 

Hvað kemur þér í gott skap ? Arilíus Smári sonur minn á margar fleygar setningar sem koma mér í gott skap. Svo hlæ ég alltaf hressilega þegar að ég hitti félaga mína sem reyndar er orðið alltof sjaldan.

 

Hvert er mesta afrek þitt í lífinu ? Arilíus Smári ekki spurning. Svo er það líka stórt afrek að hafa náð að kynnast konu sem nennti að giftast manni.

 

Í hverju varstu bestur í skóla ? Lang bestur í kjaftafögunum og sporti. Raugreinarnar voru ekki að liggja alveg eins vel fyrir mér.

 

Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta ? Leyfa aftaní tæklingar. Reglurnar í dag virðast orðið miðaðar við að einungis kvenfólk og börn leiki íþróttina.

 

Ef þú yrði að vera einhver annar í einn dag, hver myndir þú vilja vera ? Ég held að það hljóti að vera ævintýrilega fyndið að vera Lemmy í Motörhead í einn sólarhring.


Á næstunni


olismot.is set.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta