Fullt nafn og gælunafn? Íris Sverrisdóttir, Íris.
Aldur? 14 ára
Fjölskylda? Pabbi heitir Sverrir, mamma Dröfn og systir mín heitir Anna Hlín. Svo á ég kisu sem heitir Snotra.
Hvernig tónlist hlustar þú á? Ég hlusta mikið á fm 957.
Uppáhalds vefsíða? www.fotbolti.net
Uppáhalds sjónvarpsefni? Fótbolti og margt fleira.
Uppáhaldsmatur? Pizza held ég.
Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta og af hverju? Ég held ég hafi verið svona 6 ára. Ég byrjaði því Anna Hlín var að æfa og mig langaði að prófa. Svo hafði ég oft fengið að fara með pabba að þjálfa og fékk mikin áhuga.
Eftirminnilegasti leikur þinn? Hann var þegar ég var í 5. flokki, úrslita leikurinn á pæjumótinu á Sigló á móti Þrótti. Hann fór 0-0 svo það var varpað hlutkesti og Þróttur vann það. Frekar svekkjandi.
Uppáhaldslið? Manchester United og Selfoss.
Hvaða liði myndir þú ekki spila með? Æj, ég veit það ekki eða jú það er mjög ólíklegt að ég myndi spila með BÍ.
Hverjir eru þínir helstu kostir? Ég er jákvæð.
Fyrirmynd í lífinu? Í fótboltanum eru það Ásthildur Helgadóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir.
Hvað kemur þér í gott skap? Skemmtilegt fólk.
Hvert er mesta afrek þitt í lífinu? Ég man ekki eftir neinu núna.
Í hverju varstu best í skóla? Ég er sterkust í íslensku.
Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta? Ég held að ég vilji bara ekki breyta neinni.
Ef þú yrði að vera einhver annar í einn dag, hver myndir þú vilja vera? Cristiano Ronaldo.
