Beint á leiðarkerfi vefsins

Knattspyrna

Knattspyrna - RSS

22.12.2007 | Knattspyrna

Hin hliðin á Ingva Rafni

Fullt nafn og gælunafn? Ingvi Rafn Óskarsson, Ingvi.

Aldur? 14 ára.

Fjölskylda? Óskar og Þórhildur eru foreldrar mínir og bræður mínir heita Arilíus og Jóhann Fannar.

Hvernig tónlist hlustar þú á? Rokk og popp.

Uppáhalds vefsíða? fotbolti.net

Uppáhalds sjónvarpsefni? Enski boltinn.

Uppáhaldsmatur? Nautalundir með bernaise sósu.

Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta og af hverju? Þegar ég var 4 ára dró pabbi mig á æfingu í Gagnheiðinni.

Eftirminnilegasti leikur þinn? Á móti FH í 5. flokki, þá skoraði ég þrennu.

Uppáhaldslið? Manchester United.

Hvaða liði myndir þú ekki spila með? Liverpool.

Hverjir eru þínir helstu kostir? Metnaðargjarn og skapgóður.

Fyrirmynd í lífinu? Kaká.

Hvað kemur þér í gott skap? Góð fótboltaæfing.

Hvert er mesta afrek þitt í lífinu? Að komast í úrtakshóp U-16 ára landsliðsins.

Í hverju ertu bestur í skóla? Stærðfræði liggur vel fyrir mér.

Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta? Ég myndi vilja láta taka harðar á leikaraskap.

Ef þú yrði að vera einhver annar í einn dag, hver myndir þú vilja vera? Ég myndi vilja vera Wayne Rooney eða einhver annar í Man. Utd. og fara á æfingu með þeim.


Á næstunni


olismot.is set.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta