Fullt nafn og gælunafn? Laufey Inga Guðmundsdóttir. Yfirleitt bara Laufey, en hér í denn voru einhverjir sem kölluðu mig “vara Palli” Systkini mín kalla mig laula en það var pabbi sem hafði það leyfi þegar ég var yngri.
Fjölskylda? Vel gift honum Brynjari mínum og á 3 mega flott börn...!
Hvernig tónlist hlustar þú á? Hlusta á Tinu Turner, Madonnu, Preysley, Queen og Robbie Williams.
Uppáhalds vefsíða? umfs.is
Uppáhalds sjónvarpsefni? Lítið fyrir það en hér áður mátti ég ekki missa af Derick og Dallas....
Uppáhaldsmatur? Hefðbundinn jólamatur, og humarforréttur a la Brynjar. Lambið alltaf gott líka.
Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta og af hverju? Sennilega elti ég Palla og pabba út á völl. Byrjaði að æfa ca 8ára og þá með strákunum.
Eftirminnilegasti leikur þinn? Sennilega með 5. karla þegar Bjössi rak var dómari og varð að stöðva leikinn því ég hafði misst tíkóið úr hárinu og rakarinn reddaði því fyrir mig.
Uppáhaldslið? Selfoss og Man. Utd.
Hvaða liði myndir þú ekki spila með? Alltaf eitthvað fúl út í KR, veit ekki afhverju.
Hverjir eru þínir helstu kostir? Alltaf í góðu skapi, hress, stríðin á jákvæðan hátt.
Fyrirmynd í lífinu? Það eru margar en nefni þó Mömmu og Önnu systir. Flottar konur!
Hvað kemur þér í gott skap? Fjölskyldan mín, frídagar, gott veður, góður matur og jólin. Svo auðvitað stelpunrnar mínar í 5. og 6. flokki þegar þær eru duglegar á æfingu....
Hvert er mesta afrek þitt í lífinu? Börnin mín 3 eftir 3 bráðakeisara!
Í hverju varstu best í skóla? Fótbolta í leikfimi svo aðallega.... leyndi á mér í eðlisfræði.
Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta? Get ekki fundið neina reglu sem er ekki rétt. Fótbolti snild eins og hann er.
Ef þú yrði að vera einhver annar í einn dag,hver myndir þú vilja vera? Ragnheiður Hergeirs. og gera hér flotta aðstöðu fyrir íþróttafólk á augabragði eða Margrét Lára og spila þá fyrir Selfoss!
