Beint á leiðarkerfi vefsins

Knattspyrna

Knattspyrna - RSS

5.1.2008 | Knattspyrna

Hin hliðin á Óskar-Ar

Fullt nafn og gælunafn ?  Óskar Valberg Arilíusson  (Blue sky)              

 

Aldur ? 42 ára

 

Fjölskylda ? Giftur Þórhildi Dröfn Ingvadóttur og við eigum 3 syni, Ingva Rafn, Arilíus og Jóhann Fannar

 

Hvernig tónlist hlustar þú á ? Ég er alæta á tónlist, hlustaði mikið á pönk og frekar þungt rokk þegar ég var yngri, en hef mildast svolítið með árunum.

 

Uppáhalds vefsíða ? Fótbolti.net og selfossfc.com

 

Uppáhalds sjónvarpsefni ? Allar beinar útsendingar frá knattspyrnuleikjum og golfi, Næturvaktin stendur líka fyrir sínu.

 

Uppáhalds matur ? Íslenski lambahryggurinn, og svo er humar og lúða líka ofarlega.

 

Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta og af hverju ? ætli ég hafi ekki verið um 6 ára aldurinn, kem frá Stokkseyri og þar var annaðhvort að leika sér í fjörunni eða í fótbolta.

 

Eftirminnilegasti leikur þinn ? Það mun vera opnunarleikurinn á nýjum malarvelli á Stokkseyri gegn Þór frá Þorlákshöfn (blóð sviti og tár, mest þó blóð)

 Og síðan var það leikurinn á móti Magna Grenivík í sumar þegar við í Selfossliðinu tryggðum okkur sæti í fyrstu deild næsta árið.

 

Uppáhalds lið ? Það er Selfoss númer eitt tvö og þrjú, er einnig forfallinn aðdáandi Tottenham Hotspur.

 

Hvaða liði myndir þú ekki spila með ?  Þessi er auðveld, mundi aldrei spila með Liverpool (sæll Dóri)

 

Hverjir eru þínir helstu kostir ? Jákvæður og  bjartsýnn. Annars held ég að það sé annarra að dæma mína kosti.

 

Fyrirmynd í lífinu ? Reynir maður ekki að taka það besta úr fari þeirra sem standa næst manni, þannig að Mamma mín og fósturfaðir koma fyrst upp í hugann. (Einnig væri gott að líkjast Halldóri Morthens mánudags vini mínum svolítið)

 

Hvað kemur þér í gott skap ? Strákarnir mínir þrír eiga sína spretti, þannig að maður getur ekki annað en glaðst og gleymt lífsins áhyggjum.

 

Hvert er mesta afrek þitt í lífinu ? Það var þegar ég stofnað fjölskylduna mína

 

Í hverju varstu bestur í skóla ? Þetta steinlá allt fyrir mér.

 

Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta ? Ég mundi leyfa að dæmt yrði leikbönn fyrir leikaraskap eftir vídeó upptöku eftir leiki. Þessi leikaraskapur er að skemma þessa dásamlegu íþrótt.

 

Ef þú yrði að vera einhver annar í einn dag, hver myndir þú vilja vera ? Hugh Hefner.


Á næstunni


olismot.is olis.istoyotaselfossi.isbyko.isset.issamkaup.iskaffikrus.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta