Fullt nafn og gælunafn? Einar Ottó Antonsson.
Aldur? 23 ára.
Fjölskylda? Harpa Hrönn Gísladóttir. Foreldrar Anton Hartmannsson og Ragnhildur Jónsdóttir, systkini Ragnheiður og Hartmann.
Hvernig tónlist hlustar þú á? Misjafnt nú er það nýi Radiohead-diskurinn.
Uppáhalds vefsíða? youtube/wikipedia.
Uppáhalds sjónvarpsefni? Seinfeld.
Uppáhalds matur? Nautalund.
Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta og af hverju? Held það hafi verið þegar ég var 5 eða 6 ára og fór með Jóni Guðbrandssyni.
Eftirminnilegasti leikur þinn? Þeir eru margir. Gaui Tobba var að rifja upp leik á móti HK fyrir allmörgum árum. Þegar ég og Arilíus fundum ekki staðinn sem leikurinn átti að fara fram á og hringsóluðum í Kópavogi í klukkutíma og mættum 5 mín fyrir leik. Það er ekki góð minning því við töpuðum svo leiknum.
Uppáhaldslið? Cardiff fc
Hvaða liði myndir þú ekki spila með? Líklega Leikni Reykjavík
Hverjir eru þínir helstu kostir? Læt aðra dæma um það.
Fyrirmynd í lífinu? Aron Pálmi.
Hvað kemur þér í gott skap? Að vera í góðra vina hópi.
Hvert er mesta afrek þitt í lífinu? Veit ekki hvað það er hingað til en það er eitt stykki Nóbell á leiðinni.
Í hverju varstu bestur í skóla? Ætli það sé ekki íþróttir.
Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta? Ég myndi vilja bæta við einu spjaldi eins og er á götuljósum fyrsta aðvörun grænt, önnur aðvörun gult og þriðja rautt.
Ef þú yrði að vera einhver annar í einn dag, hver myndir þú vilja vera? Kiddi Vídeó fluga mæli með því að fólk leyti að myndbandinu hans á youtube.
