Fullt nafn og gælunafn? Gunnar Borgþórsson “Gunni Borgþórs”.
Aldur? 26 ára
Fjölskylda? Konan mín heitir Sigrún Ýr Magnúsdóttir fasteignasali og saman eigum við Emblu Dís 2 ára. Foreldrar mínir Heita Borgþór og Hrafnhildur og eru búsett á Egilsstöðum. Systkini mín eru Bylgja 27 ára, Unnur Arna 16 ára og Þórarinn 23 ára.
Hvernig tónlist hlustar þú á? Ég hlusta ekki mikið á tónlist en vil meina að ég sé rokkari.
Uppáhalds vefsíða? fótbolti.net
Uppáhalds sjónvarpsefni? Fréttir og íþróttir, Enski boltinn. Svo verð ég að nefna Næturvaktina.
Uppáhalds matur? Heimalöguð hollustu pizza er í uppáhaldi ásamt bökuðum kjúkling.
Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta og af hverju? Ætli ég hafi ekki verið um 5 ára á Egilsstöðum. Man ekki af hverju ég byrjaði en leiðin lá bara út á völl.
Eftirminnilegasti leikur þinn? Margir eftirminnilegir, en minn eftirminnilegasti er þegar ég fékk fyrst séns með meistaraflokki Hattar 15 ára gamall og við sigruðum Huginn Seyðisfirði í baráttuleik. Hrikaleg spenna!!
Uppáhaldslið? Liverpool.
Hvaða liði myndir þú ekki spila með? Aldrei að segja aldrei en Murcia á Spánni er mjög ólíklegt.
Hverjir eru þínir helstu kostir? Jákvæður og vinnusamur.
Fyrirmynd í lífinu? Marco Van Basten var hetjan mín í boltanum en núna eru mínar fyrirmyndir fullt af fólki sem hefur náð langt í lífinu.
Hvað kemur þér í gott skap? Skemmtilegir einstaklingar.
Hvert er mesta afrek þitt í lífinu? Byggja upp fjölskyldu og heimili.
Í hverju varstu bestur í skóla? íþróttir og Enska. Var nettur í frímínútum.
Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta? Ekki breyta neinu, fótboltinn er fullkominn eins og hann er.
Ef þú yrði að vera einhver annar í einn dag, hver myndir þú vilja vera? Ég er nokkuð sáttur með mig en ég væri til í að vera einhver frumbyggi í grimmustu Afríku og athuga hvernig það væri. En bara í einn dag.
