Beint á leiðarkerfi vefsins

Knattspyrna

Knattspyrna - RSS

1.2.2008 | Knattspyrna

Hin hliðin á Ómari Vald

Fullt nafn og gælunafn ? Ómar Valdimarsson “Bóbó”

 

Aldur ? 37

 

Fjölskylda ?  Giftur Kolbrúnu Birgisdóttur og á tvær dætur með henni, Veroniku 16 ára og Bríeti Mörk 13 ára.

 

Hvernig tónlist hlustar þú á ? Allt mögulegt

 

Uppáhalds vefsíða ? fotbolti.net

 

Uppáhalds sjónvarpsefni ? Aðallega íþróttir og svo er ég reyndar hooked á Forbridelsen þessar vikurnar :o)

 

Uppáhalds matur ? Þorramatur er í miklu uppáhaldi núna

 

Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta og af hverju ? Ég byrjaði ekki að æfa fótbolta á fullu fyrr en ég var 13 ára. Ég var alltaf eitthvað í sveit á sumrin og svo körfu- og handbolta á veturna – en svo sá ég ljósið.

 

Eftirminnilegasti leikur þinn ? Ætli það sé ekki bikarúrslitaleikurinn 2002 með Fylki.

 

Ertu hjátrúarfullur? Nei, alveg laus við það.

 

Setur þú þér markmið? Já og held þeim fyrir mig.

 

Uppáhalds lið ? Selfoss, Fylkir og Arsenal

 

Hvaða liði myndir þú ekki spila með ? Nafnið á liðinu skiptir litlu máli það væru kannski frekar einhverjir stjórnendur sem ég gæti ekki unnið með.

 

Hverjir eru þínir helstu kostir ? Þolinmóður og rosalega góður kokkur :o)

 

Fyrirmynd í lífinu ? Ég og Tony vorum mjög nánir einhvern tímann.

 

Hvað kemur þér í gott skap ? Skemmtilegt fólk og góður matur.

 

Hvert er mesta afrek þitt í lífinu ? Börnin eru mjög vel heppnuð hjá mér.

 

Um hvað dreymir þig?  Man ekki drauma

 

Hver er fyrsta minning þín? Þegar ég fékk einhvern tímann kartöflu í skóinn. Hræðileg minning.

 

Erfiðasti mótherji? Man ekki eftir neinum sérstökum.

 

Auðveldasti mótherji? Man eftir nokkrum kettlingum, vill ekki nefna nein nöfn þar sem mér þykir svo vænt um þá. En einn þeirra vinnur í Mest.

 

Í hverju varstu bestur í skóla ? Mjög sleipur í þýsku og hornafræði.

 

Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta ? Þetta er fullkomin íþrótt.

 

Ef þú yrðir að vera einhver annar í einn dag, hver myndir þú vilja vera ? hmmm...? Það væri gaman að vera í bæjarstjórn í einn dag og koma af stað fjölnota, yfirbyggðum gervigrasvelli. Verst að það yrði flautað af daginn eftir.


Á næstunni


olismot.is olis.istoyotaselfossi.isbyko.isset.issamkaup.iskaffikrus.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta