Beint á leiðarkerfi vefsins

Knattspyrna

Knattspyrna - RSS

12.2.2008 | Knattspyrna

Hin hliðin á Kjartani Björnssyni

Fullt nafn og gælunafn? Kjartan Björnsson rakari

Aldur? 42 ára

Fjölskylda? ég á þrjú yndisleg börn Hólmfríði Ernu 18 ára, Viðar Örn 17 ára og Katrín Örnu 12 ára.

Hvernig tónlist hlustar þú á? Allskonar tónlist en helst þarf hún að vera melódísk.

Uppáhalds vefsíða? arsenal.is og umfs.is/knattspyrna

Uppáhalds sjónvarpsefni? Fótbolti og fréttir.

Uppáhalds matur? Allur matur góður en súrir hrútspungar og slátur er fremst.

Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta og af hverju? fimm ára byrjaði ég og efalaust fyrir orð föður míns sem var formaður Knattspyrnudeildar UMF Selfoss á annan áratug.

Eftirminnilegasti leikur þinn? Sigurleikur gegn Haukum í Hafnarfirði í 3 flokki þegar ég skoraði með skalla í vinkilinn, nokkrir þegar ég skoraði með stokkseyringum um árið og síðast en ekki síst þegar ég skoraði fyrsta og síðasta markið mitt á Highbury vorið 2005.

Uppáhalds lið? Selfoss og topplið Arsenal.

Hvaða liði myndir þú ekki spila með? Manchester United enda of sókndjarfur fyrir það lið.

Hverjir eru þínir helstu kostir? Bjartsýnn, áræðinn og samviskusamur.

Fyrirmynd í lífinu? Amma mín Katrín.

Hvað kemur þér í gott skap? Samskipti við fólk og samvera með þeim sem mér þykir vænst um og sigurleikur Selfoss og Arsenal.

Hvert er mesta afrek þitt í lífinu? Börnin mín hiklaust.

Í hverju varstu bestur í skóla? Stafsetningu þar sem ég fékk 10 í einkunn.

Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta?  Taka harðar á töfum sem eru óþolandi í fótboltaleik.

Ef þú yrði að vera einhver annar í einn dag, hver myndir þú vilja vera? Ég held ég myndi bara áfram glíma við að vera ég sjálfur, það er fullt verkefni.


Á næstunni


olismot.is olis.istoyotaselfossi.isbyko.isset.issamkaup.iskaffikrus.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta