Beint á leiðarkerfi vefsins

Knattspyrna

Knattspyrna - RSS

18.2.2008 | Knattspyrna

Hin hliðin á Gissuri getraunakappa

Fullt nafn og gælunafn? Gissur Jónsson og kallaður Gissur.

Aldur? 31 árs.

Fjölskylda? Já, já, Hafdís Jóna og börnin tvö Íris Embla og Logi Freyr.

Hvernig tónlist hlustar þú á? Rokk og að sjálfsögðu alla skemmtilegu barnatónlistina á ferðalögum með fjölskyldunni.

Uppáhalds vefsíða? Soccernet... eina sem maður þarf og svo auðvitað tippleikur.is/selfoss.

Uppáhalds sjónvarpsefni? Íþróttir og fréttir.

Uppáhalds matur? Jólamaturinn eða slátur með kartöflum og uppstúf!

Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta og afhverju? Ætli ég hafi ekki verið svona 23 ára þegar ég fór að æfa fótbolta af alvöru og það gerði ég til að komast í gott form.

Eftirminnilegasti leikur þinn? Það er erfitt að velja en ég skoraði einu sinni þrennu á móti Chaka á æfingu... held það hafi verið toppurinn á ferlinum.

Ertu hjátrúarfullur? Já, nema hvað. Það er ekki eins og maður sé að leita sér að stigum til að labba undir eða hrífum til að traðka á.

Setur þú þér markmið? Já.

Uppáhalds lið? Sindri, Selfoss og United

Hvaða liði myndir þú ekki spila með? Neista á Djúpavogi nema hvað!

Hverjir eru þínir helstu kostir? Rólegur, traustur og sjálfstæður.

Fyrirmynd í lífinu? Foreldrar mínir og allt annað gott fólk er mínar fyrirmyndir. Fólk sem er tilbúið að leggja sitt af mörkum til að skapa gott samfélag.

Hvað kemur þér í gott skap? Konan mín, börnin mín og bekkurinn minn ásamt mörgu öðru.

Hvert er mesta afrek þitt í lífinu? Er það afrek hjá karlmanni að eiga tvö yndisleg börn? Já, það hlýtur að vera mesta afrekið.

Um hvað dreymir þig? Mjög margt en ég er nú þeim hæfileika gæddur að gleyma því um leið og ég opna augum á morgnana.

Hver er fyrst minning þín? Að sofa í básnum hjá henni Ósk þegar ég var þriggja ára, enda var hún uppáhalds kýrin mín,

Erfiðasti mótherji? Ármann Smári.

Auðveldasti mótherji? Enginn, enda þarf maður að geta eitthvað í fótbolta til að mótherjarnir verði auðveldir.

Selfoss er........ flottasti bærinn á Íslandi.

Í hverju varstu bestur í skóla? Stærðfræði og íþróttum.

Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta? Til hvers að breyta því sem er fullkomið.

Ef þú yrði að vera einhver annar í einn dag, hver myndir þú vilja vera? Þessi er erfið... en ætli ég myndi ekki vilja vera Tommi Þórodds. Hef nefnilega lengi velt fyrir mér hvað er þess valdandi að hann er alltaf brosandi. Fór hann í aðgerð eða er hann bara svona svakalega fyndinn.


Á næstunni


olismot.is set.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta