Beint á leiðarkerfi vefsins

Knattspyrna

Knattspyrna - RSS

25.2.2008 | Knattspyrna

Hin hliðin á Sævari Sig

Fullt nafn og gælunafn: Sævar Sigurðsson, Sævar Sig“.

Aldur: 26 ára.

Fjölskylda: Foreldrar mínir heita Ingunn Hinriksdóttir og Sigurður Ingólfsson. Svo á ég tvö systkini sem heita Halldór og Sigríður. 

Hvernig tónlist hlustar þú á: Ég hlusta nánast á alla tónlist, er reyndar töluverður aðdáendi U2.

Uppáhalds vefsíða: fotbolti.net og helgin.is

Uppáhalds sjónvarpsefni: Meistaradeild Evrópu, deild þeirra bestu sem öllum langar mest til að vinna.

Uppáhalds matur: Það toppar ekkert jólamatinn hjá Ingunni.

Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta og af hverju: Held að ég hafi farið á mína fyrstu æfingu 5 ára.

Eftirminnilegasti leikur þinn: Án efa þegar ég spilaði djók leik með skólaliði sem ég var í Bournemouth á Englandi gegn einhverju ensku liði sem var skipað kolbrjáluðum Bretum.

Ertu hjátrúarfullur: Nei ekki lengur, var það þegar ég var yngri.

Setur þú þér markmið: Það kemur fyrir.

Uppáhalds lið: Liverpool og Selfoss.

Hvaða liði myndir þú ekki spila með eða þjálfa: Leiknir Reykjavík hefur aldrei heillað mig.

Hverjir eru þínir helstu kostir: Það er annarra að dæma.

Fyrirmynd í lífinu: Þær eru nokkrar en fótboltalega var Ruud Gullit fyrirmyndin mín þegar ég var yngri.

Hvað kemur þér í gott skap: Þegar Liverpool vinnur og þ.a.l. er ég nánast alltaf í góðu skapi.

Erfiðasti mótherji: Man ekki eftir neinum.

Auðveldasti mótherji: Án efa Haukur Páll Ægisson sem hefur ekki unnið mig í neinu.

Selfoss er........ flott fótboltalið.

Í hverju varstu bestur í skóla: Stærðfræði.

Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta: Tel enga ástæðu til að breyta neinu, þar sem fótbolti er fullkomin eins og hann er.

Ef þú yrði að vera einhver annar í einn dag, hver myndir þú vilja vera: Bill Gates.


Á næstunni


olismot.is set.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta