Beint á leiðarkerfi vefsins

Knattspyrna

Knattspyrna - RSS

11.3.2008 | Knattspyrna

Hin hliðin á Braga

agnar_bragi_wideFullt nafn og gælunafn? Agnar Bragi Magnússon. Gælunafn : Kameldýrið

 

Aldur? 21 árs

 

Fjölskylda? Mamma(Helen), pabbi(Magnús), svo á ég tvo bræður sem heita Haukur og Viktor og einn eldgamlan kött sem heitir Pjakkur.

 

Hvernig tónlist hlustar þú á? Hlusta aðallega á rock og metal, annars hlusta ég á næstum allt.

 

Uppáhalds vefsíða? fotbolti.net og umfs.is :D

 

Uppáhalds sjónvarpsefni? 24, Prison Break og Family Guy svo er klikkar aldrei að horfa á fótbolta.

 

Uppáhalds matur? Svínarif með barbequesósu og rjúpur á jólunum.

 

Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta og afhverju? Ætli ég hafi ekki byrjað þegar ég var svona um það bil fimm til sex ára. Mamma ákvað að setja mig í dans þegar ég var fimm ára en mér leiddist hann svo mikið að þegar maður loksins mætti í þessa danstíma þá svaf maður allan tímann. Svo loksins þegar maður byrjaði í fótboltanum þá vissi maður ekkert í hvort markið maður ætti að skora. En það kom nú á endanum.

 

Eftirminnilegasti leikur þinn? Það er tveir leikur sem eru mér mjög minnisstæðir. Reyndar bæði tapleikir. Annar leikurinn er úrslitaleikurinn á Shellmótinu þegar við töpuðum 3-2 á móti KR. Það var 2-2 þegar það voru 5 mínútur eftir og þá ákvað Theodór Elmar Bjarnason að smella honum upp í Samúel(samt ekki Samúel í Selfoss) og þar með fór það. Hinn leikurinn var bikarúrslitaleikurinn í 2.flokki á mínu elsta ári þar. Töpuð líka 3-2 þar, á móti FH.

 

Ertu hjátrúarfullur? Engan veginn.

 

Setur þú þér markmið? Setja sér ekki allir markmið?

 

Uppáhalds lið? Fylkir, Selfoss og Liverpool.

 

Hvaða liði myndir þú ekki spila með? Aldrei segja aldrei

 

Hverjir eru þínir helstu kostir? Ótrúlega morgunhress, stundvís og orðheppinn

 

Fyrirmynd í lífinu? Zinedine Zidane hefur verið það síðan ég kynntist knattspyrnuíþróttinni. Svo má ekki gleyma pabba og mömmu.

 

Hvað kemur þér í gott skap? Allt milli himins og jarðar

 

Hvert er mesta afrek þitt í lífinu? Hef nú ekki afrekað mikið á minni stuttu ævi. Ætli það merkilegasta sé ekki nokkrir unglingalandsliðsleikir, stúdentsprófið og bílprófið(sem tók allt of langan tíma að nást.)

 

Um hvað dreymir þig? Zoran

 

Hver er fyrst minning þín? Fyrstu minningarnar um mig eru einfaldlega þær að ég var sílemjandi alla og allir voru kvartandi undan mér.

 

Erfiðasti mótherji? Ætli ég myndi ekki segja Haukur Ingi. Ótrúlega leiðinlegt að dekka hann.

 

Auðveldasti mótherji? Myndi vilja segja Ómar Vald en þá væri ég að ljúga.

 

Selfoss er........ lið á uppleið

 

Í hverju varstu bestur í skóla? Sögu

 

Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta? Engu.

 

Ef þú yrði að vera einhver annar í einn dag, hver myndir þú vilja vera? Dettur nú ekki marga í hug. Ætli ég myndi nú ekki bara segja Ingó idol.


Á næstunni


olismot.is set.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta