Fullt nafn og gælunafn? Edda Björk Eggertsdóttir, kölluð Edda.
Aldur? 32 ára.
Fjölskylda? Foreldrar mínir eru Eggert Garðarsson og Svava Björk Johnsen, á einn bróðir Anton Örn 17 ára og þau eru búsett í Vestmannaeyjum. Svo eru það dætur mínar Alexandra Bía 13 ára og Sara Sif 7 ára.
Hvernig tónlist hlustar þú á? Er alæta á tónlist, sígild FM tónlist, en U2 og Queen eru algjör snilld.
Uppáhalds vefsíða? Fer nú mest inná skóli.is þessa dagana.
Uppáhalds sjónvarpsefni? Horfi á fréttir, Gray‘s Anatomy, 60 mín. og íþróttir. Eins horfði ég alltaf á Stelpurnar, Næturvaktina og Pressu og fannst fantagóðir.
Uppáhalds matur? Finnst flestur matur góður, en humar er í miklu uppáhaldi..
Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta og af hverju? Minnir að ég hafi verið 9 ára , en við vorum alltaf í fótbolta í frímó og reyndar alla daga, svo ég skellti mér á æfingu með strákunum, þar sem ekki voru byrjaðar æfingar fyrir stelpur á þessum tíma fyrir minn aldur.
Eftirminnilegasti leikur þinn? Vá, hef spilað marga skemmtilega leiki, þá helst í handboltanum, þá hafa leikirnir erlendis í Evrópukeppninni verið alveg ótrúleg upplifun. En leikurinn sem ég mun aldrei gleyma er fyrsti bikarmeistaratitillinn minn í mfl. í handbolta, en þá voru c.a. 15 sek. eftir og við missum boltann marki undir, en á ótrúlegan hátt unnum við boltann og fiskuðum víti, sem tryggði okkur framlengingu, sem við tókum (létt), bikarinn okkar og við sigldum með Herjólfi til Eyja og fengum ótrúlegar mótökur að hætti eyjamanna.
Ertu hjátrúarfull? Já, ég hef alltaf verið mjög hjátrúarfull í íþróttum og hagaði t.d. undirbúningi fyrir leiki alltaf eins. Eitt tímabilið átti ég sokka sem ég spilaði alltaf í og það tímabil spiluðum við 52 leiki án taps, þannig engu mátti breyta....
Setur þú þér markmið? Já, ég geri það.
Uppáhaldslið? Þau eru nú reyndar nokkur, en IBV og Selfoss eru mest í uppáhaldi.
Hvaða liði myndir þú ekki spila með? Aldrei að segja aldrei, en ég myndi aldrei spila undir merkjum KR.
Hverjir eru þínir helstu kostir? Er með rosalegt keppnisskap og er frekar þrjósk. (Sem er reyndar kostur og ókostur.)
Fyrirmynd í lífinu? Hef átt margar fyrirmyndir í lífinu, leit mikið upp til Súlla afa míns, sem var ótrúlegur viskubrunnur. Annars hef ég fundið mér fyrirmyndir sem hafa skarað framúr í því sem ég hef verið að fást við þá stundina og tileinkað mér það besta frá þeim.
Hvað kemur þér í gott skap? Er alltaf í góðu skapi. (Bara misgóðu).
Hvert er mesta afrek þitt í lífinu? Eignast stelpurnar mínar Alexöndru Bíu og Söru Sif.
Um hvað dreymir þig? Að eiga gott líf, að fjölskyldan mín sé heilbrigð og lifi vel og lengi. Heim án stríðs.... Og margt margt fleira....
Hver er fyrst minning þín? Vá ég er svo gleyminn.......
Erfiðasti mótherji? Ætli ég sjálf sé ekki minn erfiðasti mótherji....
Auðveldasti mótherji? Anton bróðir í sjómann, (hefur ekki enn náð að vinna mig)
Selfoss er........ Bæjarfélag á hraðri uppleið, og fótboltinn er klárlega á leið í úrvalsdeild innan þriggja ára.
Í hverju varstu best í skóla? Stærðfræði og íþróttum.
Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta? Tel að fótboltinn sé eins fullkominn og hann getur orðið í dag.
Ef þú yrði að vera einhver annar í einn dag, hver myndir þú vilja vera? Björgólfur Thor, eða einhver að auðmönnum landsins í dag, og ég myndi fjárfesta í fjölnota knattspyrnuhöll á Selfossi og er klár á því að það yrði brilljant fjárfesting....
