Fullt nafn og gælunafn ? Elvar Gunnarsson alltaf kallaður Elvar
Aldur ?35
Fjölskylda ? Giftur Maríu Kristínu Örlygsdóttur og við eigum börnin Brynjar , Sif, og Írisi Örnu
Hvernig tónlist hlustar þú á ?Mjög fjölbreytta. U2 er í miklu uppáhaldi eins Vilhjálmur Vilhjálmsson.Annars hlusta ég á flest allt. Þó ekki blús.
Uppáhalds vefsíða ? /www.umfs.is/knattspyrna
Uppáhalds sjónvarpsefni ?Enski boltinn og fréttir
Uppáhalds matur ?Allur ítalskt-ættaður
Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta og af hverju ? held 10.ára. Skemmtilegur félagsskapur
Eftirminnilegasti leikur þinn ? Skemmtilegast í sumar þegar ég var liðstjóri þegar við unnum á Grenivík
Ertu hjátrúarfullur? Já mjög
Setur þú þér markmið? Já alltaf að setja sér markmið í öllu.
Uppáhalds lið ?Selfoss og Liverpool
Hvaða liði myndir þú ekki spila með ? Það myndi enginn vilja hafa mig í sínu liði. En kannski myndi ég segja Í.B.V.
Hverjir eru þínir helstu kostir ? Ég er mjög hreinskilinn og blátt áfram í öllum mínum samskiptum við fólk. Svo er ég svolítið eins og Daninn myndi segja “ligeglade”
Fyrirmynd í lífinu ? Afi Jón, Amma Sigrún, Mamma og Stebbi Hólmgeirs.
Hvað kemur þér í gott skap ?Góður sigur hjá Selfoss og Liverpool. Og dóttir mín Íris Arna. Einnig símtal frá mínum frábæru vinum.
Hvert er mesta afrek þitt í lífinu ? Eignast góða fjölskyldu og frábær börn.
Um hvað dreymir þig? Bjarta framtíð með blóm í haga (og ásgeir braga)
Hver er fyrst minning þín? Þegar ég og Stebbi Hólmgeirs voru heima hjá heimavinnandi mæðrum okkar og sprautuðum grænu hreinoli í augun á Sigga Fannari sem var innan girðingar á leikskólanum Glaðheimum.
Erfiðasti mótherji? Siggi Fannar í fótbolta
Auðveldasti mótherji? Tommi í Badminton
Selfoss er.......Barry Barry Manilow. Frábær staður ég elska þennan bæ
Í hverju varstu bestur í skóla ? Ljóðum. Afleitur í skrift
Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta ? Ekki neinu
Ef þú yrði að vera einhver annar í einn dag, hver myndir þú vilja vera ?Steven Gerrard í Maí næstkomandi þegar hann mun lyfta evrópu bikarnum.
