Beint á leiðarkerfi vefsins

Knattspyrna

Knattspyrna - RSS

28.1.2010 | Knattspyrna

Dúkarabandið gaf allan ágóða af plötusölu til knattspyrnudeildar

Á Þorrablótinu hans Kjartans Björnssonar, sem haldið var um síðustu helgi, var óvænt skemmtiatriði. Þar steig á svið hljómsveitin Dúkarabandið og flutti nokkur frumsamin lög og hélt í leiðinni útgáfutónleika sína. En á dögunum gáfu þeir út diskinn „Tree little roofer boys“  Á Þorrablótinu gengu svo leikmenn meistaraflokks karla í knattspyrnu um salinn og seldu diskinn fyrir þá félaga og gáfu þeir allan ágóðan, eða 2000 kr. pr. disk til knattspyrnudeildar. 

Hljómsveitina Dúkarabandið skipa þeir Guðbrandur Jónsson, Gunnlaugur Óttarsson og Stefán Hólmgeirsson. Í fyrra fóru tvö fyrstu lög strákanna í spilun, en það voru lögin Pípari og Gæsin. Það er Guðbrandur Jónsson sem semur lög og texta hljómsveitarinnar. Diskurinn verður til sölu hjá Orra í MogM í hótel Selfoss.  

Tómas.


Á næstunni


olismot.is olis.isset.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta