Úrvalsdeildarlið Selfyssinga í knattspyrnu undirbýr sig nú af kappi fyrir átökin í Pepsi-deildinni í sumar. Af því tilefni að liðið leikur nú í fyrsta skipti á meðal þeirra bestu hefur verið ákveðið að efna til firma- og hópakeppni, til minningar um Guðjón Ægi Sigurjónsson. Fyrirtæki og hópar geta skráð sig til leiks í mótið og er það öllum opið. Nánari upplýsingar og skráning eru hjá Sveinbirni, s. 897-7697, Tómasi, s. 699-0660, og Sævari, s. 899-0887.
Um kvöldið verður svo styrktarball meistaraflokks knattspyrnudeildar Selfoss í Hvítahúsinu á Selfossi. Þá gefst stuðningsmönnum liðsins tækifæri til að ræða við leikmenn, þjálfara og aðstandendur liðsins yfir léttum kassagítarstónum frá tveimur af úrvalsdeildarmönnum Selfyssinga í tónlist. Eftir miðnætti byrjar svo ballið fyrir alvöru með DJ Búna, Bjórbandinu sem munu koma fram ásamt leynigesti. Það verða svo Ingó og Veðurguðirnir sem klára kvöldið. Strákarnir hvetja alla stuðningsmenn, velunnara og aðra Sunnlendinga til að fjölmenna, húsið opnar kl. 23.00 og kostar aðeins 2.000 kr. inn og er 18 ára aldurstakmark. Athugið sérstaklega að ballið er opið öllum. Forsala miða er á fasteignasölunni Árborgir og eins eru strákarnir í meistaraflokki hlaupandi um allan bæ til að selja miða. Áfram Selfoss...
