Beint á leiđarkerfi vefsins

Knattspyrna

Knattspyrna - RSS

5.2.2010 | Knattspyrna

Ingi Rafn kominn heim

Ingi Rafn Ingibergsson skrifaði nýverið undir þriggja ára samning við Selfoss. Ingi Rafn er því aftur komin heim í heiðadalinn eftir að hafa leikið með ÍBV undanfarin fjögur tímabil, en hann byrjaði sinn meistaraflokksferil hjá Selfoss. Ingi Rafn hefur æft með Selfyssingum í vetur og spilað nokkra æfingaleiki með liðinu og staðið sig vel.

Ingi Rafn er fæddur á Stokkseyri og er hann því þriðji Stokkseyringurinn í liðinu. Fyrir eru þeir Henning Eyþór Jónasson og Arilíus Marteinsson. Svo má ekki gleyma því að liðstjóri liðsins, Óskar Arilíusson, er einnig Stokkseyringur. Ásamt því að leika með liðinu mun Ingi Rafn vera aðstoðarþjálfari hjá yngri flokkum. 

Tómas. 


Á nćstunni


olismot.is olis.istoyotaselfossi.isbyko.isset.issamkaup.iskaffikrus.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta