Beint á leiðarkerfi vefsins

Knattspyrna

Knattspyrna - RSS

5.2.2010 | Knattspyrna

Leikjaniðurröðun klár og stjörnulið Hemma Gunn mætir á svæðið

Þá er leikjaniðurröðun fyrir minningarmót um Guðjón Ægir Sigurjónsson tilbúin. Alls eru 21 lið búin að skrá sig til leiks og telja fróðir menn það vera nálægt meti ef ekki met í fyrirtækjakeppni á vegum Selfossliðsins. Fulltrúar liða eru hvött til að mæta kl. 9.30 í Íþróttahúsið Iðu og taka þátt í uppboði á meistaraflokksleikmönnum. Þau lið sem telja sig tilbúin í slaginn, án frekari styrkingu geta mætt 30 mínútum fyrir fyrsta leik, en sjá má leikjaniðurröðun hér að neðan.  

Riðill 1 er leikinn í Vallaskóla og byrjar kl. 10.00 (ath. mæta í Iðu kl. 09.30) en eftirtalin lið eru í 1. riðli: Sportbær, Toyota, Bílasala Selfoss, Menam og TM.

Riðill 2 er leikinn í Iðu og byrjar kl. 10.00, en eftirtalin lið eru í 2. riðli: Lögmenn Suðurlandi strákar, Kökugerðin, JP lögmenn, Húsasmiðjan og Snyrtistofan Myrra.

Riðill 3 er leikinn í Iðu og byrjar kl. 12.00, en eftirtalin lið eru í 3. riðli: Pylsuvagninn, SET, GSG, TAP og Lögmenn Suðurlandi stelpur.

Riðill 4 er leikinn í Iðu og byrjar kl. 14.00, en eftirtalin lið eru í 4. riðli: Rakarast. B&K/Útvarp Suðurl, Stjörnulið Hemma Gunn, Hávarður Ísfirðingur, Krás/Hrói, Bakki og TRS. 

Nánari upplýsingar veita Tómas s. 699-0660 og Sævar Þór s. 899-0887

Tómas.  


Á næstunni


olismot.is olis.istoyotaselfossi.isbyko.isset.issamkaup.iskaffikrus.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta