Beint á leiđarkerfi vefsins

Knattspyrna

Knattspyrna - RSS

2.3.2010 | Knattspyrna

Fyrsti heimaleikur í fótboltanum á fimmtudag

Meistaraflokkur Selfoss mætir Fjölni í Lengjubikarnum á gervigrasinu á Selfossi fimmtudaginn 4. apríl í fyrsta heimalek liðsins á þessu ári. Leikurinn hefst kl. 19.00. Strákarnir hafa leikið tvo leiki í Lengjubikarnum í ár, töpuðu fyrir Fram, en unnu KA. Þessi leikur átti að vera í apríl, en var flýtt um mánuð og er því nauðsynlegt að allir knattspyrnuáhugamenn láti vita af þessum leik. 

Í sigurleiknum gegn KA vantaði nokkra leikmenn m.a. Arilíus, Sævar Þór, Einar Ottó, Henning, Gumma Ben og Ingþór. Ekki er ljóst hverjir af þeim verða með á fimmtudag. Selfoss og Fjölnir höfðu deildarskipti síðasta haust og má væntanlega búast við skemmtilegum leik. 

Liðin léku tvo leiki sumarið 2003 þegar Fjölnir fór upp í 1. deild. Fyrri leikurinn fór fram á Selfossvelli 6. júní og lentu Selfyssingar í því að missa leikreyndasta leikmann sinn af velli með rautt spjald á 22. mínútu, en unnu leikinn 3-0. Hvort það hafi verið beint samhengi þar á milli man undirritaður ekki. Mörk Selfoss skoruðu Valgeir Reynisson, Jónas Guðmannsson og Arilíus Marteinsson. Hér má sjá byrjunarliðið í þeim leik.

Liðin gerðu síðan 1-1 jafntefli í Grafarvogi í seinni leiknum og var það Jón Sveinsson sem skoraði jöfnunarmarkið þar. Hér má sjá byrjunarliðið í þeim leik.

Líklegt byrjunarlið á fimmtudag er: Jóhann Ólafur, Siggi Eyberg, Stefán Ragnar, Agnar Bragi, Andri Freyr, Gummi Tóta, Jón Guðbrands, Ingó Tóta, Jón Daði, Ingi Rafn og Árni Páll.

Tómas.


Á nćstunni


olismot.is olis.istoyotaselfossi.isbyko.isset.issamkaup.iskaffikrus.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta