Selfoss tók á móti Fjölni í 3. umferð Lengjubikarins í knattspyrnu í gær. Fyrir leikinn voru bæði lið með þrjú stig eftir tvo leiki. Fjölnismenn féllu niður í 1. deild s.l. sumar, en Selfyssingar fóru upp í úrvalsdeild á sama tíma og því ljóst að stefndi í skemmtilegan leik. Þetta var fyrsti leikur á vegum KSÍ sem leikinn er utandyra á þessu ári og var veðrið vægast sagt frábært, logn, þriggja stiga hiti og úði á köflum.
Fjölnismenn byrjuðu leikinn af miklum krafti fyrstu tíu mínúturnar án þess þó að skapa sér ákveðin marktækifæri. Eftir það voru Selfyssingar nokkuð ráðandi í leiknum. Fyrsta færi leiksins fékk Ingó Tóta eftir sendingu frá Jón Daða, en skot hans var ekki nógu gott. Stuttu seinna átti Viðar Guðjónsson skot framhjá marki Selfyssinga. Næsta færi leiksins fékk Jón Daði, en Hrafn varði vel frá honum.
Þegar nokkuð var liðið á seinni hálfleik misstu Selfyssingar boltann eftir hornspyrnu og Fjölnismenn komust fjórir á móti tveimur varnarmönnum Selfyssinga, en Elli markmaður sweepaði vel og bjargaði efnilegri sókn Fjölnis. Jón Guðbrands var svo nálægt því að sleppa í gegn stuttu síðar, en vantaði lokahnykkinn.
Selfyssingar fengu svo hornspyrnu á síðustu mínútu leiksins. Gummi Tóta tók spyrnuna frá hægri og eftir klafs í teignum náði Árni Páll Hafþórsson til boltans og setti hann örugglega í markið af stuttu færi. Staðan því 1-0 fyrir Selfoss í hálfleik og sennilega bara nokkuð sanngjörn staða.
Selfoss hélt áfram á sinni leið í upphafi seinni hálfleiks og fyrsta færið fékk Ingi Rafn eftir góðan kross frá Andra Frey. Ingi Rafn hitti boltann illa í upplögðu tækifæri. Agnar Bragi átti svo ágætt skot framhjá eftir aukaspyrnu frá Gumma Tóta. Eftir það komu Fjölnismenn betur inn í leikinn og héldu boltanum vel, en flestar sóknir enduðu þó á varnarlínu Selfyssinga.
Á 60. mínútu kom Sævar Þór inná fyrir Árna Pál, en þetta var fyrsti leikur Sævars Þórs á þessu ári. Stuttu seinna kom svo Gunni Borgþórs inn fyrir Inga Rafn og Ingþór kom inn fyrir Jón Guðbrands. Ingþór fór á vinstri kant og Gummi Tóta inn á miðju.
Þegar Fjölnismenn virtust vera að ná yfirhöndinni í leiknum tók Jón Daði Böðvarsson til sinna ráða. Eftir að Gunni Borgþórs hafði unnið boltann og sent hann á Jón Daða fór Jón Daði framhjá tveimur varnarmönnum Fjölnis, lék svo á Hrafn í markinu og skorað í tómt markið, virkilega vel gert hjá stráknum og staðan orðin 2-0.
Við þetta mark fjölguðu Fjölnismenn í sókninni og leikurinn galopnaðist síðasta korterið. Elli markmaður varði virkilega vel skalla í horn, frá Fjölnismanni. Úr hornspyrnunni bjargaði Siggi Eyberg á línu og vildu einhverjir Fjölnismenn fá víti, en erfitt var að greina það í þvögunni. Siggi Eyberg skipti svo útaf og inn kom Jón Sveins.
Stuttu seinna bjargaði Fjölnismaður á línu, eftir að Jón Daði hafði sloppið í gegn og sett boltann undir markmann þeirra. Á síðustu mínútu leiksins átti Sævar Þór gott skot eftir kross frá Agnari Braga, en Hrafn varði vel. Í uppbótartíma skoraði svo Marinó Þór Jakobsson fyrir Fjölni eftir baráttu í vítateig Selfyssinga. Leikurinn endaði því 2-1 fyrir Selfoss. Nokkuð sanngjarnt þó aldrei hefði verið hægt að segja hvernig hefði farið ef Fjölnismenn hefðu jafnað.
Næsti leikur Selfyssinga er gegn Grindavík og er um æfingaleik að ræða. Leikurinn fer fram sunnudaginn 7. mars og hefst kl. 10.30.
Byrjunarlið Selfoss: Elli, Siggi Eyberg, Stefán Ragnar, Agnar Bragi, Andri Freyr, Gummi Tóta, Ingó Tóta, Jón Guðbrands, Jón Daði, Ingi Rafn og Árni Páll. Notaðir varamenn: Sævar Þór, Gunni Borgþórs, Ingþór og Jón Sveins.
Tölfræði leiksins: Selfoss skot 8, horn 5. Fjölnir skot 5, horn 8. Áhorfendur voru um 120.
Tómas.
