Beint á leiđarkerfi vefsins

Knattspyrna

Knattspyrna - RSS

5.3.2010 | Knattspyrna

Selfoss mćtir Grindavík í Kórnum á sunnudag

Selfoss mætir Grindavík sunnudaginn 7. mars kl 10.30 í Kórnum Kópavogi. Um æfingaleik er að ræða og má búast við að fleiri leikmenn fái spilatíma heldur en í leikjum Lengjubikarsins.

Liðunum hefur báðum gengið ágætlega í Lengjubikarnum í vetur. Grindvíkingar hafa þrjú stig eftir tvo leiki, fyrst töpuðu þeir fyrir Haukum og unnu síðan Fjarðabyggð. Selfyssingar hafa sex stig eftir þrjá leiki. Fyrst töpuð þeir fyrir Fram, en unnu svo KA og Fjölni.

Í fyrra léku liðin einn leik og unnu Grindvíkingar hann 4-3 mörk Selfyssinga skoruðu þeir Sævar Þór tvö mörk og Arilíus eitt mark. Árið 2008 léku liðin tvo leiki. Fyrri leikurinn fór 1-1 og var það Ingólfur Þórarinsson sem skoraði mark Selfoss. Seinni leikinn unnu Selfyssingar 3-1 með mörkum frá Sævari Þór, Viðari Erni og Einari Ottó.

Áhugafólk um Selfossliðið er hvatt til að mæta og kíkja á strákana á sunnudagsmorgun, því aldrei er að vita nema einhver ný andlit láti sjá sig á gervigrasinu í Kórnum á sunnudag.  

Tómas.


Á nćstunni


olismot.is olis.istoyotaselfossi.isbyko.isset.issamkaup.iskaffikrus.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta