Á morgun laugardag munu fótboltastrákarnir í meistaraflokki Selfoss selja yfirvaraskegg til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands. Þetta átaksverkefni krabbameinsfélagsins er sérstaklega gert til að vekja athygli á krabbameini karlmanna. Knattspyrnumennirnir verða í Bónus, Krónunni og á kjörstað í Vallarskóla og selja þar yfirvaraskeggið. Yfirvaraskeggið kostar 1.500 kr. og að sjálfsögðu rennur allur ágóði til styrktar krabbameinsveikum. Fólk er að eindregið hvatt til að styrkja gott málefni og splæsa í yfirvaraskegg.
Tómas.
