Beint á leiđarkerfi vefsins

Knattspyrna

Knattspyrna - RSS

8.3.2010 | Knattspyrna

Selfoss vann Grindavík 2-1

Selfoss og Grindavík spiluðu æfingaleik í Kórnum í dag. Selfyssingar unnu leikinn 2-1 eftir að hafa lent undir. Þetta er þriðji sigurleikur Selfyssinga í röð og hafa margir góðir punktar komið fram í hverjum leik, sem hægt er að vinna með. Selfoss var heilt yfir sterkara lið í þessum leik, þó svo að leikurinn hafi verið nokkuð kaflaskiptur. Nokkra leikmenn vantaði í bæði lið og gerði Gummi Ben tilraunir með Selfossliðið í þessum leik.

Byrjunarlið Selfoss 4-1-4-1: Jóhann Ólafur (Elli), Siggi Eyberg (Jón Sveins), Bjarni Þorsteins (Gunni Borgþórs), Kjartan Sig, Andri Freyr, Stefán Ragnar, Ingþór (Árni Páll), Jón Guðbrands (Birkir), Ingó Tóta, Reynir (Ingvi Rafn) og Sævar Þór (Harti).

Grindvíkingar byrjuðu leikinn betur, en það var þó Ingþór sem var fyrstur til að gleðja áhorfendur er hann skildi varnarmann andstæðingana eftir, eftir flott touch. En það var í takt við leikinn sem Grindavík komst yfir á 20. mín, er Emil Daði skoraði er hann fylgdi vel á eftir fínni markvörslu hjá Jóa eftir skot frá Grétari Hjartar. Stuttu síðar var Scott Ramsey nálægt því að koma Grindavík í 2-0 er skot hans fór rétt yfir.

Stefán Ragnar spilaði nýja stöðu sem aftasti maður á miðju í dag. Hann átti fyrstu marktilraun Selfyssinga er hann skaut með vinstri í tilefni dagsins. Stefán Ragnar leit greinilega á þetta sem æfingarskot, því fimm mínútum seinna tók hann þríhyrning við Ingþór og var komin með boltann á svipaðan stað og lét aftur vaða með vinstri og nú hafnaði boltinn í netinu. Staðan orðin 1-1 og 30 mínútur liðnar af leiknum.

Fimm mínútum seinna var Ingó Tóta tekinn niður í miðjuhringnum. Jón Guðbrands var fyrstur til að átta sig, tók aukaspyrnuna strax og fann Sævar Þór sem skoraði í fyrsta framhjá markmanni Grindavíkur og staðan orðin 2-1 fyrir Selfoss.

Selfyssingar voru svo í sókn það sem eftir lifði hálfleiks. Sævar Þór var við það að sleppa einn í gegn. Andri Freyr og Ingó Tóta galopnuðu vörn andstæðingana fyrir Reyni sem átti góðan kross fyrir á Ingþór, en skalli hans fór rétt framhjá. Á síðustu mínútu hálfleiksins stal Ingó Tóta boltanum gaf á Jón Guðbrands sem fann Ingþór í fyrsta, en skot hans fór framhjá.

Grindvíkingar byrjuðu líka betur í seinni hálfleik, án þess þó að skapa sér alvöru færi. Eftir um 10 mínútna leik komust Selfyssingar vel inn í leikinn og sköpuðu sér hættulegri færi. Fyrst fann Reynir framherjann Sævar Þór eftir að hafa tekið einn á, en varnarmaður Grindavík komst fyrir skot Sævars. Í næstu sókn gaf Jón Guðbrands á Andra, hann kom með góðan kross sem Ingþór skallaði niður til Sævars. Sævar var tekinn niður og dómari leiksins dæmdi víti. Sævar Þór lét hins vegar verja frá sér úr vítinu.

Stuttu síðar stal Ingó Tóta síðan boltanum fór framhjá einum, stak á Sævar Þór sem var óheppinn með skot sitt. Þegar um 20 mínútur voru eftir slapp Andri Freyr í gegn, en markmaður Grindvíkinga kom vel út á móti og lokaði markinu. Hinumegin fékk Ondo gott færi, en skaut framhjá. Sævar Þór vann svo boltann framarlega á vellinum, en skot hans var vel varið.

Grindvíkingar færðu sig svo ofar síðustu 10 mínúturnar og fékk Ramsey m.a. tvær aukaspyrnur á hættulegum stað. Annað skotið fór framhjá, en Elli varði hitt. Síðasta færi Selfyssinga fékk Harti, eftir góðan undirbúning Árna Páls og Ingva Rafns, en skot Harta var varið.

Ekkert mark var skorað í seinni hálfleik og endaði leikurinn því með sanngjörnum 2-1 sigri Selfyssinga. Eins og áður sagði er þetta þriðji sigurleikur Selfyssinga í röð og allir eru þeir gegn gulum liðum, fyrst KA, svo Fjölni og nú Grindavík. Draumurinn er því að mæta Norwich eða Willareal í Evrópukeppninni þegar að því kemur.

Tölfræði leiksins: Selfoss skot 11, horn 2. Grindavík skot 7, horn 1.

Nokkra leikmenn vantaði í Selfossliðið. Einar Ottó og Henning hafa ekki leikið ennþá og að auki voru þeir Jón Daði, Gummi Tóta, Arilíus, Agnar Bragi og Ingi Rafn ekki með.

Næsti leikur Selfoss er gegn Leikni í Lengjubikarnum. Leikurinn er föstudaginn 12. mars kl. 19.00 í Egilshöll.

Tómas.    


Á nćstunni


olismot.is olis.istoyotaselfossi.isbyko.isset.issamkaup.iskaffikrus.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta