Í fyrsta leik sínum í efstu deild karla, Pepsi-deildinni í fótbolta, mæta Selfyssingar Fylki, nágrönum sínum úr Árbænum. Leikurinn fer fram á gervigrasinu á Selfossi þriðjudaginn 11. maí kl. 19.15.
Undanfarin ár hefur verið mikill samgangur á milli þessara liða og gagnkvæm virðing. Þrír Selfyssingar hjálpuðu Fylkismönnum þegar uppgangur þeirra var sem mestur fyrir nokkrum árum. Ómar Valdimarsson aðstoðarþjálfari Selfoss var fyrirliði þeirra um skeið og leiddi þá til tveggja bikarmeistaratitla. Markahrókurinn Sævar Þór Gíslason er markahæsti leikmaður Fylkis frá upphafi í efstu deild. Markmaður Selfyssinga Jóhann Ólafur fór ungur í Árbæinn og náði því ekki að tryggja sér sæti í byrjunarliðinu, en á nokkra leiki með þeim.
Agnar Bragi Magnússon einn af lykilleikmönnum Selfossliðsins í dag er uppalin í Árbænum. Hann kom á Selfoss árið 2007 og hefur tekið út ótrúlegan þroska á þessum tíma. Ásgeir Börkur Ásgeirsson kom með Agnari Braga á Selfoss, en fór til baka fyrir síðasta tímabil algjörlega tilbúinn í efstu deild.
Einar Pétursson miðvörður Fylkis er líka slatta mikill Selfyssingur. Pétur Einarsson faðir hans er fæddur og uppalinn á Selfossi og hann var einnig hörku knattspyrnumaður, var t.a.m. valinn leikmaður ársins í 2. flokki Selfoss árið 1975.
Liðin hafa alls mæst 20 sinnum í leikjum á vegum KSÍ. Skemmst er frá því að segja að Fylkismenn hafa mikla yfirburði þegar kemur að innbirgðis viðureignum. Þeir hafa unnið 16 leiki, 2 hafa endað með jafntefli og Selfyssingar hafa bara unnið tvo leiki. Markatalan er eðlilega í takt við þessa tölfræði og hafa Árbæingar skorað 59 mörk gegn 18 mörkum Selfoss.
Annar af tveim sigurleikur Selfyssinga var 1972 í bikarkeppninni, en þá var Framarinn Anton Bjarnason spilandi þjálfari með Selfossliðinu. Þetta ár var mikill metnaður í liðinu og æft þrisvar í viku, sem taldist mjög gott þá. Ein þessara æfinga var alltaf á Laugarvatni því vallaraðstæður voru svo slæmar á Selfossi. Eins var skrifað um það í blöðin að Selfyssingar hafi komið til Reykjavíkur til að æfa knattspyrnu. Leikmenn Selfoss árið 1972 voru m.a Einar Sigfússon, Örn Grétarsson, Þór Valdimarsson, Karl Hillers, Gísli Sváfnisson, Gunnar Guðmundsson, Guðjón Skúlason, Birgir Ástráðsson, Sævar Ástráðsson, Helgi Þorvaldsson, Sigurður Reynir Óttarsson, Sverrir Ólafsson, Magnús Jakobsson, Óskar Marelsson, Kristinn Grímsson, Tryggvi Gunnarsson, Sumarliði Guðbjartsson og Anton Bjarnason þjálfari.
Fylkismenn enduðu óvænt í þriðja sæti deildarinnar í fyrra og spurning hvort Óli Þórðar nái að fylgja eftir þeim frábæra árangri. Athyglisverðir leikmenn sem vert er að fylgjast með eru Ásgeir Börkur Ásgeirsson sem við þekkjum auðvitað vel. Eins eru Kjartan Ágúst Breiðdal, Tómas Þorsteinsson og Ingimundur Níels Óskarsson efnilegir leikmenn. Valur Fannar Gíslason er svo auðvitað gríðarlega sterkur miðjumaður og Albert Brynjar Ingason mágur Gumma Ben er í fremstu línu hjá þeim og hefur staðið sig vel.
Líklegt byrjunarlið þeirra 4-3-3: Fjalar, Andrés, Einar Péturs, Kristján Valdimars, Tómas Joð, Ásgeir Börkur, Valur Fannar, Ólafur Stígs, Ingimundur, Kjartan og Albert Inga.
Einhver meiðsli hafa verið að stríða Selfyssingum síðustu daga, flestir eru komnir inn aftur, en óvíst er með einhverja. Líklegt byrjunarlið Selfoss er Jóhann Ólafur, Siggi Eyberg, Agnar Bragi, Stefán Ragnar, Andri Freyr, Gummi Tóta, Henning Eyþór, Arilíus, Jón Daði, Davíð Birgis og Sævar Þór.
Í líklegu byrjunarliði Selfyssinga er Sævar Þór elstur og með mestu reynsluna. Hann er 34 ára og með 119 leiki í efstu deild. Næst elstur og jafnframt með næst flesta leiki í efstu deild er Henning Eyþór, hann er 26 ára með 12 leiki í efstu deild. Ekki er hægt að segja að varnarlína Selfyssinga sé reynslumikil. Samtals á hún 1 leiki í efstu deild, og það er Agnar Bragi sem á hann, en að auki á markmaðurinn Jóhann Ólafur 3 leiki.
Stuðningsmenn Fylkis ætla að smala í rútu og taka road trip á þetta. Því er ljóst að stuðningsmenn Selfoss liðsins verða að vera vel með frá fyrstu mínútu og sína andstæðingunum hvað heimavöllur er.
Veðrið heldur áfram að leika við Selfyssinga og gesti þeirra. Þegar flautað verður til leiks á þriðjudag verður 12 stiga hiti, léttskýjað og logn.
Aðaldómari leiksins er Keflvíkingurinn Magnús Þórisson, en hann hefur skipað sér á bekk með bestu dómurum landsins. Honum til aðstoðar eru þeir Áskell Þór Gíslason og Gylfi Már Sigurðsson. Eftirlitsmaður leiksins verður Einar K. Guðmundsson.
Tómas
