Þá er komið að 12. umferð í Pepsídeildinni eða fyrstu umferð í seinni hluta mótsins og byrja Selfyssingar að heimsækja Fylkismenn í Árbæinn. Leikurinn fer fram 18. júlí kl 19.15 á Fylkisvelli. Selfyssingar gerðu jafntefli í síðasta leik gegn Grindavík í Grindavík á meðan Fylkismenn sátu hjá í 11. umferð íslandsmótsins og töpuðu sínum leik í Evrópukeppninni. Selfyssingar eru eftir þetta jafntefli með 8 stig í 10 sæti deildarinnar, en Fylkir er með 12. stig í 9. sæti deildarinnar.
Í leiknum gegn Grindavík léku þeir Guðmundur Þórarinsson og Jón Daði Böðvarsson sinn 50. leik fyrir Selfoss. Skemmtilegt að þeir fóstbræður nái þessum áfanga í sama leik. Svo í leiknum gegn Fylki mun Jón Guðbrandsson að öllum líkindum leika sinn 100. leik fyrir Selfoss.
Selfyssingar töpuðu fyrri leik liðana 3-1 á Selfossi, en með því að klikka hér á Selfoss.org má sjá umfjöllun um þann leik. Eins er hægt að skoða upphitun fyrir fyrri leik liðana hér þar sem kemur m.a fram tengsl liðana og fleira áhugavert.
Liðin hafa alls mæst í 21 skráðum leik á vegum KSÍ. Fylkismenn hafa mikla yfirburði, hafa unnið 17 leiki, 2 hafa endað með jafntefli og Selfyssingar hafa unnið 2 leiki. Þann fyrri 1972 og þann seinni 1994 svo að nú er farið að styttast allverulega í næsta sigur.
Liðin áttust við á Selfossvelli þann 10. júní 1994 og sigruðu Selfyssingar þann leik 2-1 eftir að Fylkismenn höfðu komist yfir með markið Aðalsteins Víglundssonar. Magni Blöndal Pétursson jafnaði leikinn eftir að hafa fylgt á eftir vítaspyrnu sem var varin frá Sævari Þór. Það var svo Sævar Þór sem skoraði sigurmarkið þegar 3 mínútur voru eftir af leiknum. Sævar Sverris átti langt innkast sem Ómar Vald flikkaði á Sævar sem skoraði með viðstöðulausu skoti í markið. Bestir í liði Selfoss samkvæmt umfjöllun Morgunblaðsins voru þeir Sævar Þór og Hjalti Þorvarðarsynir.
En þá að leiknum á sunnudag og er líklegt byrjunarlið Selfoss: Jóhann Ólafur, Stefán Ragnar, Agnar Bragi, Kjartan Sig, Jón Guðbrands, Einar Ottó, Gummi Tóta, Ingó Tóta, Jón Daði, Davíð Birgis og Sævar Þór.
Líklegt byrjunarlið Fylkis er Andrew Bazi, Andrés Már, Þórir Hannesson, Kristján Valdimars , Tómas Joð, Ásgeir Börkur, Valur Fannar, Andri Þór, Pape Mamadou Faye, Albert Ingason og Jóhann Þórhalls. Fjalar Þorgeirs missti sæti sitt í byrjunarliðinu eftir að hafa fengið 3 mörk á sig úr hornum í síðustu tveimur leikjum. Einar Péturs hefur líka verið að fá færri sjensa en í byrjun og spurning hvort hann komi aftur inn.
Síðustu sex leikir liðanna í deild líta svona út, síðasti leikur er aftast. S er sigur, J er jafntefli og T er tap.
Selfoss : T-T-T-T-T-J
Fylkir : T-J-T-T-S-J
Afmælisbarn dagsins er aðstoðarþjálfari Selfoss Ómar Valdimarsson, en hann verður 40 ára þann 18. júlí. Áhorfendur beggja liða mega endilega syngja fyrir kallinn, enda átti hann mörg af sínum bestu árum í Árbænum þar sem hann sem fyrirliði Fylkis leiddi þá til sigurs í bikarkeppninni. Svo mun Ómar, ef ég þekki hann rétt bjóða stuðningsmönnum beggja liða upp á einn ískaldann á Blásteini eftir leik.
Dómari leiksins er klárlega einn af bestu dómurum landsins. Gunnar Jarl Jónsson er búinn að fara hratt upp í hæsta styrkleikaflokk dómara, enda hefur hann alla burði til að fara alla leið í þessu, hann les leikinn vel og hefur egóið í þetta. Honum til aðstoðar á sunnudag verða þeir Einar Sigurðsson og Eðvarð Eðvarðsson. Eftirlitsmaður á sunnudag verður Þórður Georg Lárusson.
Heimasíða Fylkis er nokkuð góð, fínt spjallborð og heitasta fréttin er sú hvort Gylfi Einarsson sé að snúa heim. Hér er hægt að skoða heimasíðuna hjá fylkismönnum.
Það verða einhverjir berir að ofan í stæðunum við Fylkisvöll á sunnudaginn því það verður ca 19 stiga hiti, logn og alveg þurrt.
Tómas.