Hin árlega blakkeppni 3. flokks í knattspyrnu fór fram í gær. Stjörnulið Gunna Borgþórs mætti til leiks sem sýningarlið og voru tilþrif þeirra oft á tíðum ótrúleg. Eftir skemmtilegar úrslitaviðureignir fór það þó svo að lokum að lið Samba vann, en það lið skipuðu Markús Vernharðsson, Þórður Sindri Ólafsson, Sindri Pálmason og Þorsteinn Daníel Þorsteinsson.
Ísak Eldjárn Tómasson bað í fyrradag þjálfarann Gunnar Borgþórsson um nákvæma dagskrá yfir morgundaginn, honum fannst þetta allt frekar í lausu lofti. Gunni spurði Ísak hvað stæði til og Ísak svaraði um hæl að hans stefna væri að setja inn í dagskrána að ganga frá íþróttagallanum sínum í íþróttatöskuna.
Salurinn sem við gistum í er júdósalur og því eðlilegt að sett yrði upp júdómót. Björn Ingi Harðarson og Gauti Gunnar Halldórsson voru kvart millimetra frá því að hálsbrotna, en þeir er nú sólahring seinna farnir að hugsa um það að kinka kolli. Þjálfarinn Gunnar Borgþórsson lamdi Reynir Óskarsson og nokkra aðra leikmenn og mun fræðslunefnd KSÍ taka málið fyrir á fundi sínum þann 27. júlí. Borard mætti svo á svæðið og leysti júdómótið upp og fór svo að lokum að engin þorði að keppa við hann nema Haukur Ingi Gunnarsson, sem þurfti að lúta í grasið fyrir honum.
Aftur á móti mun fræðslunefnd KSÍ ekki skipta sér af fjárhættuspili hjá liðinu þar sem Gunni Borgþórs er búinn að hala inn hátt í 200 sænskar krónum af strákunum. En að sjálfsögðu mun barnaverndarnefnd Árborgar ásamt Dómsmálaráðuneytinu með vísun til 5. gr. laga nr. 13/1973 taka málið fyrir á neyðarfundi sínum sem boðað var til vegna málsins.
Albert Eiríksson og Albert Rútsson verða að fá að vita hvað „jusse“ þýðir. Afgreiðslustúlka ávarpaði þá hi jusse og þeir eru helst á því að jusse þýði sæti......farastjórnin er ekki eins viss.
Hjörtur Leó Guðjónsson gaf afgreiðslustúlku sem var sennilega ekki í brjóstahaldara númerið sitt, ekki hefur verið hringt ennþá í Hjört, en sennilega er stúlkan að leita að landsnúmerinu á Ísland. Hjörtur var einnig búinn að þjálfa unga stúlku í að halda á kókinu sínu á með hann borðar borgarann sinn.
Einhverjar rosalega sætar gellur sem strákarnir hittu í Mollinu buðu þeim í strandpartý. Erfitt er orðið að ímynda sér hvað er raunveruleiki og hvað óskhyggja.
Jóhannes fékk ekki að kaupa orkudrykk í verslun og var við það að snappa er afgreiðslukonan bað hann um skilríki. Benti á hökuna á sér og sagði „sí mæ börd...sí mæ börd“
Æfingar ganga rosalega vel, mikil taktík tekin fyrir og hörku æfingar. Eftir æfingu í gær var svo vatnsslagur í hitanum, en hann er um 25 gráður í forsælu. Nú í dag munu strákarnir spila tvo æfingaleiki við lið Frölunda frá Svíþjóð og nánar verður sagt frá þeim í næstu færslu.
Og að lokum er áríðandi tilkynning frá gaurunum í 3. flokki „Stelpur á suðurlandsundirlendinu, Superman kemur heim sunnudaginn 25. júlí og bjargar ykkur“
Tómas.