Beint á leiđarkerfi vefsins

Knattspyrna

Knattspyrna - RSS

20.7.2010 | Knattspyrna

Dagbók frá Svíţjóđ- 3. hluti

Allt gengur eins og í sögu hér í Gautaborg hjá strákunum í 3. flokk í knattspyrnu. Netsamband er þó nokkuð óstöðugt, en við notum tækifærið um leið og við komust í samband. Hér að neðan er dagbók yfir síðustu þrjá daga.


Strákarnir kepptu æfingaleiki við Frölunda á laugardaginn og stóðu sig mjög vel. U-16 ára liðið gerði 0-0 jafntefli og voru mjög óheppnir að skora ekki í leiknum. U-15 ára liðið tapaði nokkuð sanngjarnt 1-2, en þar kom Ísak Eldjárn Tómasson Selfyssingum yfir. Leikmenn vissu fyrir leik að Frölunda er með eitt besta unglingastarfið hér í Svíþjóð og að klúbburinn hefur 3 sinnum  unnið Guthia-cup og 5 sinnum fengið silfur þar, á meðan t.d Íslenskt lið hefur aldrei komist í 8 liða úrslit þar. Þannig að strákarnir vissu ekki alveg hvað þeir voru að fara út í og gaman fyrir þá að máta sig við alvöru lið fyrir mótið, en þess má þó geta að við drógumst gegn Frölunda í riðlakeppninni. Óhætt er að segja að Selfyssingar hafi komið þjálfara Frölunda á óvart með góðum leik og egóið hækkaði um fjóra heila hjá okkar mönnum eftir leikinn.


Egóið var greinilega ennþá í hæstu hæðum þegar 9 strákar úr liðinu þrömmuðu niður í bæ daginn eftir og keyptu sér rakvélar, raksápu og after save.


Á sunnudag var flutningur úr júdósalnum í skólann. Strákarnir hafa verið í æfingabúðum í júdósalnum, en eru nú komnir í skólann þar sem þeir verða á meðan mótið er. Húsvörðurinn í júdósalnum gekk undir nafninu jólasveinninn hjá drengjunum. Það var að mestu útaf skeggvexti hans og jú að einhverju leiti sefar þetta aðskilnaðarkvíða drengjanna að hafa eitthvað sem minnir á Ísland og minnir á foreldrana gefa þeim í skóinn, en við skulum ekkert vera að láta þá vita af því. Í júdósalnum fundu strákarnir mynd af Jólasveinninn þar sem hann var að taka á móti bikurum fyrir frækna sigra höfðu á orði að hann væri myndarmaður ef hann rakaði sig.


Þremur tímum eftir flutninginn var einn af okkar strákum komin með norska gellu í prævad pláss og létta kossa. Einhverjir fylgdu þessum fagmanni að sjálfsögðu eftir.


Strákarnir eru annars búnir að vera duglegir að versla og farastjórnin er með það á hreinu að það er eitthvað sem þeir hafa erft frá mæðrum sínum.


Við fengum Kebab í fyrstu máltíðinni okkar. Hilmar Smári Loftsson tók að sér að skúra veturenda matsalsins en samt voru starfsmenn í mötuneytinu ekkert sérstaklega ánægð með okkur, en gátu þó hlegið af hugmyndaflugi leikmanna.


Á mánudag fóru fram fyrstu leikir í móti og gengu þeir vel. U-16 ára liðið gerði 0-0 jafntefli við frískt lið frá Mexíkó. Selfyssingar báru of mikla virðingu fyrir andstæðingunum í byrjun og var leikurinn mjög jafn. Í seinni hálfleik tóku Selfyssingar völd á vellinum og voru óheppnir að skora ekki mark. Albert Rútsson átti gott skot fyrir utan teig og eins varði markmaðurinn ótrúlega frá honum. Reynir Óskars prjónaði sig í gegn, en skot hans fór framhjá. Haukur Ingi Gunnarsson og Þorsteinn Daníel Þorsteinsson komust svo báðir í dauða færi í sömu sókninni, en inn vildi boltinn ekki. Steinar Sigurjónsson slapp svo í gegn á lokasekúndum en missti boltann of langt frá sér. Því var jafntefli staðreynd og strákarnir klárlega að læra mikið af þessum leik. Mexíkóarnir voru að leika fast og gáfu Selfyssingum engan tíma með boltann, en þegar á leið leikinn sýndu okkar hvort liðið var betra, en voru óheppnir að skora ekki.


U-15 ára liðið keppti fyrsta leikinn við Frölunda, en það er liðið sem þeir kepptu æfingaleik við á dögunum. Okkar menn  byrjuðu ekki vel og virtust þreyttir. Í hálfleik börðu menn sig saman og tóku öll völd á vellinum og unnu sanngjarnt 2-1. Sindri Reynisson skoraði gott mark eftir sendingu frá Ísak Eldjárn Tómassyni og Björn Ingi Harðarson bætti við marki eftir aukaspyrnu frá Birki Péturssyni. Selfyssingar hefðu getað bætt við mörkum, en á síðustu sekúndum leiksins minkuðu Svíarnir metin eftir vafasama vítaspyrnu.


Að lokum er nauðsynlegt að eftirfarandi komi fram „Strákarnir eru algjörir snillingar, eru sjálfum sér, félaginu og landi til sóma og vill farastjórnin þakka foreldrum fyrir frábært uppeldi“


Tómas.

Á nćstunni


olismot.is set.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta