Knattspyrna
21.7.2010 | Knattspyrna
3. flokkur komin í 64. liða úrslit í Svíþjóð með bæði liðin
Mótið gengur rosalega vel og bæði lið komin í 64 liða úrslit sem er frábært. U-15 ára lið vann tvo leiki og tapaði einu í riðlakeppninni og U-16 ára liðið vann einn leik og gerði tvo jafntefli. Samtals því þrír sigrar, tvö jafntefli og eitt tap. U-16 ára vann því sinn riðil og U-15 ára varð í öðru sæti í sínum riðli og komust því bæði lið í A úrslit.
Opnunarhátíðin var á mánudagskvöldið og var hún vægast sagt frábær. 55.000 manns á vellinum og þvílíkt flott skemmtiatriði og flugeldasýning eins og engin væri morgundagurinn. Eftir að formlegri dagskrá lauk tóku okkar strákar sviðið. Þeir sungu alla leiðina heim og vöktu mikla athygli og þá sérstaklega frá ungum stúlkum sem voru að láta taka myndir af sér með þeim og einhverjar fengu að leiða strákanna.
Strákarnir í u-15 ára liðinu spiluðu á þriðjudagsmorgninum við Granholms IF frá Svíþjóð. Gunni þjálfari lagði upp með að byrja að krafti, ná marki eða mörkum snemma og geta þá spilað þægilegan bolta eftir það því við eru bara með 23 leikmenn í tveimur liðum og þess vegna verða alltaf einhverjir að spila með báðum liðum.
Strákarnir tóku þetta alvega eins og fyrir þá var lagt og byrjuðu að krafti. Á upphafs mínútunum var Reynir Óskarsson tvisvar aðgangsharður upp við mark andstæðingana. Það var svo á 5. mínútu sem Haukur Ingi Gunnarsson slapp einn í gegn og lék á markmanninn sem sá þann kost vænstan að fella Hauk og dómarinn dæmdi að sjálfsögðu víti. Reynir fór á punktinn og setti boltann örugglega í netið og staðan orðin 1-0.
Þremur mínútum seinna kom mark númer tvö, en þá spiluð strákarnir sig frábærlega í gegnum vörn Svíana og það var svo Sindri Rúnarsson sem átti frábæra sendingu á Ísak Eldjárn Tómasson sem setti boltann örugglega í netið og staðan orðin 2-0. Tveimur mínútum seinna stak Haukur Ingi inn á Ísak Eldjárn sem setti boltann upp í hornið fjær og staðan orðin 3-0. Virkilega vel gert hjá þeim félögum. Á 15. mínútu slapp Ísak Eldjárn aftur í gegn, en markmaður Svíana kom út á móti og tók Ísak niður og ekkert annað í stöðunni fyrir dómara leiksins en að dæma víti. Ísak fór sjálfur á punktinn og setti boltann á mitt markið, en markmaðurinn skutlaði sér til hægri og staðan því orðin 4-0 og aðeins korter liðið af leiknum.
Strákarnir róuðu nú leik sinn og fátt markvert gerðist fyrr en á lokamínútu hálfleiksins er Vigfús Ingason varði mjög vel aukaspyrnu. Sindri Rúnarsson átti fyrsta færi seinni hálfleiks, en skot hans fór yfir. Sindri fékk svo færi stuttu seinna og setti boltann örugglega í nærhornið og staðan orðin 5-0. Svíarnir fengu svo besta færi sitt um miðjan seinni hálfleik, Fúsi í markinu varði boltann frábærlega upp í vinklinum. Í lok leiksins fékk Reynir Óskars svo tvo góð færi, fyrst stakk Haukur Ingi inn á hann en skot Reynis var varið. Svo átti Hilmar Loftsson góða sendingu inn á Reynir sem kláraði færið sitt virkilega vel með skoti stöngin inn. Stutt síðar flautaði dómari leiksins leikinn af og virkilega góður 6-0 sigur staðreynd og Selfyssingar því komnir í A-úrslit með u-15 ára liðið sitt.
U-16 ára liðið spilaði við (BP) Brommapojkarna en þeir eru með alls 4000 iðkenndur sem gerir þá að einu fjölmennasta unglingastarfi í heimi. Svíarnir byrjuðu betur og varði Gunnar tvisvar virkilega vel í byrjun og eins áttu Svíarnir sláarskot. Fyrsta færi Selfoss átti Þorsteinn Daníel Þorsteinsson, en skot hans af 30 metra færi var vel varið í horn. Á 14 mínútu leiksins stakk Reynir Óskarsson boltanum inn á vinstri kant og þar var Steinar Sigurjónsson mættur og skoraði af miklu öryggi og kom Selfoss í 1-0. Undir lok fyrri hálfleiks sluppu Svíarnir í gegn, en Gauti Gunnar Björnsson hljóp sóknarmann þeirra uppi og tæklaði boltann frá, mjög vel gert hjá honum. Fátt markvert gerðist síðust mínúturnar utan þess að Albert Rútsson var tæklaður svakalega og hann lenti á andlitin, en Albert er ekki vanur að væla og er hann stóð sagði hann með annað augað lokað „vá fór af mér augabrúnin eða....?
Í upphafi seinni hálfleiks átti svo Albert Rútsson skot af 25 metra færi sem markmaður Svíana náði að slá yfir. Þegar um 10 mínútur voru liðnar af seinni hálfleik átti Albert Eiríksson skot úr aukaspyrnu sem varin var í slá og yfir. Birkir Pétursson tók góða hornspyrnu og eftir þvögu barst boltinn til Jakobs Alf ....... sem setti boltann snyrtilega í netið og Selfoss því komið í 2-0. Selfoss var svo betri aðilinn í leiknum án þess að vera skapa einhver umtalsverð færi, liðið í heild spilaði frábæran varnarleik. En síðasta færi leiksins fékk Þorsteinn Daníel, eftir flotta sendingu frá Albert Rúts, en gott skot Þorsteins var varið í stöng. Leikurinn endaði því með mjög góðu 2-0 sigri Selfyssinga.
U-15 ára liðið spilaði á miðvikudagsmorgun við Panionios GSS sem er frá Grikklandi. Selfyssingarnir byrjuðu af sama krafti og í síðasta leik þrátt fyrir 26 stiga hita og glampandi sól. Fyrsta færið fékk Haukur Ingi, en gott skot hans var varið í stöng. annað færið var nokkuð óvanalegt, en eftir klafs skallaði Reynir inn á Hauk Inga sem skallaði boltann í slá. Næsta færi fékk Sindri Rúnars, eftir sendingu frá Ísak, en skot Sindra fór rétt framhjá. Grikkirnir komust svo aðeins inn í leikinn og bjargaði Fannar Pálsson í tvígang áður en dauðafæri varð. Strákarnir spiluð frábærlega allan fyrrihálfleik og er orðið virkilega gaman að sjá spilið hjá þeim.
Fyrsta markið kom svo eftir um korters leik, en eftir horn átti Reynir skot í samskeytin, Birkir Pétursson fylgdi vel á eftir og gaf boltann inn í teig og þar var Ísak Eldjárn mættur og renndi boltanum yfir línuna. Stað sanngjörn 1-0, en á síðustu mínútunni gleymdu Selfyssingar sér og Grikkirnir jöfnuðu með góðu marki.
Í byrjun seinni hálfleik varði Fúsi í markinu frábærlega, en hann kom engum vörnum við er ónefndur Grikki skoraði úr aukaspyrnu. Birkir Pétursson lagði svo upp annað mark sitt í leiknum, er vel útfærð aukaspyrna hans hitti kollinn á Sindra Pálmason sem flikkaði boltanum í netið og staðan orðin 2-2. Mjög dró af okkar strákum þegar leið á leikinn og virtist sólin fara betur í Grikkina. Þeir náðu svo að skora sigurmarkið þegar um 10 mínútur voru eftir af leiknum. Fyrsta tap mótsins staðreynd og Selfyssingar hefðu átt að gera út um leikin í byrjun, en samt sem áður komst þeir ásamt Grikkjunum í A- úrslit.
Seinni leikur dagsins var hjá u-16 ára liðinu, þar nægði jafntefli gegn þýska liðinu TSV Altenholtz. Þessi lið búa saman í skóla og var því mikið undir. Þjóðverjarnir byrjuðu betur og skoruðu mark í byrjun leiks. Fyrsta færi leiksins fékk Markús Vernharðsson, en skot hans fór rétt yfir. Leikurinn var frekar erfiður fyrir okkar stráka þar sem völlurinn var vægast sagt lélegur, en þess má þó geta að vellinir hafa verið frábærir hingað til. Rétt fyrir hálfleik leiddist Steinari Sigurjónssyni þófið tók boltann sólaði á þrjá og smelti boltanum upp í vinkilinn, frábært mark og staðan orðin 1-1. Í seinni hálfleik gerðist fátt markvert, Selfyssingar heldu bolta og voru með stöðu yfirburði allan hálfleikin. Ekkert mark var skorað í seinni hálfleik og það var nóg til að Selfoss tryggði sér sigur í riðlinum og sæti í A-úrslitum. Heilt yfir mjög taktísk stig hjá strákunum. Setning leiksins kom svo frá Jóhannesi Dúrr „gefið boltann á mig, það er þroskaheftur gaur að dekka mig, hann er þroskaheftur og feitur og getur ekki neitt, komið með boltann á mig“ Eftir leikinn kom svo í ljós að u-15 ára liðið þyrfti að spila seinna um kvöldið við norskt lið og var því ljóst að einhverjir leikmenn þyrftu að spila 3 leiki sama daginn. Slatti erfitt verkefni sem greint verður betur frá í næsta pistli.
Gaurarnir fóru á diskótek á þriðjudagskvöldið. Einhverjir fengu þar sinn fyrsta koss og aðrir voru ekki með tunguna upp í sér í tvo tíma. Engin nöfn verða hér gefin upp, en foreldrar er hvattir til að taka fyrstu gráar yfirheyrslu á mánudagsmorgun.
Mikið álag hefur verið á Gunna Borgþórs þjálfara, á daginn þarf hann að stjórna liðum sínum og á næturnar sefur hann ekki fyrir hrotum í farstjórunum. Ekki amalegt að vera þjálfari.
Tómas.