Beint á leiðarkerfi vefsins

Knattspyrna

Knattspyrna - RSS

22.7.2010 | Knattspyrna

U-16 komið í 16 liða úrslit og u-15 datt út í 32 liða úrslitum

Hér að neðan má lesa um frækna sigra hjá u-16 Selfoss gegn Brasilíska liðinu Inter Club þar sem þeir tryggðu sæti sitt í 16 liða úrslitum. Eins er umfjöllun um sigur U-15 ára liðsins gegn Bodö frá Noregi þar sem strákarnir tryggðu sér sæti í 32 liða úrslitum, en féllu svo úr leik gegn Franska liðinu Montrouge, sem er undir klúbbur efstudeildarliðsins Montpellier. Þannig að í kvöld mun u-16 ára liðið keppa sinn leik gegn Texas Longhorns frá USA í 16 liða úrslitum, en u-15 ára liðið datt út úr 32 liða úrslitum. Frábær árangur hjá frábærum strákum.


 

Eins og dyggir aðdáendur umfs.is hafa séð þá snýst Gothia-cup ferðin hjá strákunum fyrst og fremst um fótbolta. Strákarnir slepptu diskó til að geta hvílt sig fyrir mikilvæga leiki framundan. Einn morgun ofbauð samt Fúsa, þegar við löbbuðum framhjá bakaríinu á leið í morgunmat og hann sá að bakarinn var ekki einu sinni komin á fætur og sagði að þetta væri í fyrsta sinn sem hann vaknaði á undan bakara.


Fyrir leik fóru þeir Björn Ingi og Fannar Pálsson í sjúkratjaldið, Fannar með flís í fæti og Björn Ingi með tá sem var að detta af. Hjúkkurnar sögðu við þá „ó mæ gad“ og sögðu þeim að fara strax til læknis og þeir félagar kíkja á það eftir mót. „Ekkert helv. væl við erum hermenn“ hefur fengið að hljóma nokkrum sinnum í ferðinni.


U-15 ára liðið lenti á móti Bodö frá Noregi í 64 liða úrslitum. Ljóst var að um mjög erfiðan leik yrði að ræða og sumir leikmannanna því að spila sinn þriðja leik á sama mótinu, en þess má geta að leikirnir eru 2x30 mínútur í úrslitakeppninni. Leikurinn var spilaður á glæsilegum leikvangi og fullt af áhorfendum í stúkunni. Selfyssingar byrjuðu af sama krafti og í fyrri leikjum, enda þreyta bara hugarástand eins og þjálfari þeirra segir. 


Fyrsta færi leiksins fékk Sindri Rúnars, en gott skot hans fór yfir. Reynir Óskars átti svo stuttu seinna að fá víti er hann var tekin niður, en boltinn barst til Ísaks Eldjárns sem setti boltann á markið en Norski markmaðurinn varði boltann í utanverða stöngina. Birkir Péturs tók hornið og Björn Ingi Harðarson stökk hæst í teignum og skallaði boltann örugglega í netið og staðan orðin 1-0. Undir lok fyrri hálfleiks áttu Norsararnir góða sókn, en að lokum hafnaði boltinn í stönginni.


Fyrsta færi seinni hálfleiks kom eftir frábært spil hjá Hauk Inga, Björn Inga og Reyni Óskars er þeir prjónuðu sig í gegnum vörnina með einnar snertingar bolta, Reynir gaf svo út á Ísak, en ágætis skot hans fór yfir. Selfyssingar voru með tögl og haldir allan tíman á leiknum og sköpuðu sér fullt af góðum færum og eins voru leikmenn skynsamir í flestum sínum aðgerðum. Reynir hefði stuttu seinna getað fengið annað víti, en Sænski dómarinn var með sérkennilega hagnaðarreglu því boltinn barst til Sindra Pálma sem var svo tekin niður fyrir utan teig. Úr aukaspyrnunni smurði Birkir Péturs boltanum efst í vinstra nær hornið og kom Selfoss í 2-0.


Á þessum tímapunkti voru Norðmennirnir orðnir pirraðir enda þreyttir eftir erfiðan dag enda vörn okkar manna gríðarlega sterk með þá Ívar Örn Kristjánsson, Gauti Gunnar Björnsson, Birkir Péturs og Fannar Pálsson í feikna formi. Of oft voru þeir að sparka okkur niður, en okkar strákar létu það nákvæmlega ekkert á sig fá og brostu að þeim. Síðasta mark leiksins kom er Haukur Ingi átti frábæra stungusendingu inn á Reynir og hann eins og fagmaður setti boltann í netið. Þórður Sindri kom svo inná og svaraði fyrir Íslensku þjóðina, en hann fékk gult spjald eftir eina mínútu og gengur nú undir nafninu Doddi danger. 3-0 sigur staðreynd og Selfoss komið í 32 liða úrslit á Guthiacup. Það var því mikið fagnað í leikslok.


Eftir leik var Fannar Pálsson tekin í viðtal hjá Sænsku blaði og var virkilega gaman að sjá viðtalið við hann í Gautaborg post daginn eftir.


Seggur ferðarinnar hefur verið valin Sindri Pálmason, en þrátt fyrir ungan aldur og harða samkeppni við Sindra Rúnars og Þórð Sindra þá vann Sindri Pálma þetta með nokkrum yfirburðum, enda alltaf að sigta. Það góða við hann Sindra Pálma var að hann gaf ekkert eftir þó svo að foreldrar hans hafi verið kallaðir hingað til Gautaborgar af forsvarsmönnum Gothia-cup til þess eins að hafa stjórn á gaurnum.


Gísli Magnússon er stundum eins og prófesor, hann er búinn að týna öllu sem hægt er að týna, en alltaf skal hann finna dótið sitt aftur.


Hjörtur Leó Guðjónsson fór í klippingu til Víkingsstúlknanna. Hann var skveraður til og settar inn í hann fléttur, ég reyndar skil ekki hvernig þær náðu að setja fjórar fléttur í stuttklipptan strák. Hjörtur lofaði því að hann myndi skora gegn Brössunum með nýju klippinguna.


Á fimmtudagsmorgun spiluðu u-15 ára strákarnir við Franska liðið Montrouge í 32 liða úrslitum. Leiknum var líst best í hátalarakerfi og eins og venjulega var gaman að heyra framburð á nöfnum strákana. Selfyssingar byrjuðu betur eins og þeirra er von og vísa. Eftir um fimm mínútna leik spiluðu Ísak Eldjárn og Reynir sig í gegn um vörn Frakkana og að endingu átti Reynir flotta sendingu á Hauk Inga sem smelti boltanum í fyrsta í markið og Selfoss komið yfir. Selfoss var betra í fyrrihálfleik, en bökkuðu þó full aftarlega, sem var alls ekki ætlunin, en menn gera ósjálfrátt þegar þreytan er orðin mikil. Fúsi í markinu varði vel í tvígang og stuttu fyrir hálfleik var Björn Ingi óheppinn þegar skot hans fór í hliðarnetið.


Frakkarnir komu mun ákveðnari til leiks í seinni hálfleik og skoruð fljótlega eftir horn, en eitthvað einbeitingarleysi var í dekkun. Nokkrum mínútum seinna komust Frakkarnir yfir er framherji þeirra slapp í gegn og skoraði gott mark og staðan allt í einu orðin 1-2. Selfyssingar unnu sig aftur inn í leikinn og þyngdu sókn sína og átti Reynir m.a annars skot í stöng eftir horn. Þegar um fimm mínútur voru eftir fjölgaði Gunni þjálfari í sókninni og setti þrjá fram og fækkaði þar af leiðandi í vörninni. Selfyssingar höfðu ekki þrek til að ná inn marki og eins var vörn Frakkana mjög sterk. Frakkar skoruðu svo síðasta mark leiksins á lokamínútunni og Selfoss u-15 þar með dottið út. Þetta er engu að síður frábær árangur hjá strákunum og sérstaklega í ljósi þess að aðeins eru 23 leikmenn í tveimur liðum sem þýðir það að aðeins er einn varamaður fyrir bæði liðin sem segir okkur það að sumir leikmenn hafa þurft að spila allt upp í þrjá leiki á dag. Sindri Rúnars missti út úr sér „fuckings Frakkar“ dagin fyrir leik, en vonandi skilja Frakkarnir ekki svona góða Íslensku.


U-16 ára liðið byrjaði að spila á sama tíma og leikur u-15 ára liðsins var búinn og því þurfti Gunni þjálfari að keyra á milli valla á núll einni. Það tókst og beið eftir honum mjög sterkt Brasilískt lið sem heitir Inter club. Strax í upphafi var ljóst að Brassanir voru alveg með þetta, þeir voru með gríðarlega góða tækni og snarpir. Brasilíumenn komust yfir eftir nokkra mínúta leik og var það leikmaður nr 10 sem skoraði úr aukaspyrnu sem fór yfir vegginn og neðarlega í hornið. Karakter Selfyssinga er mikil og efldust þeir einfaldlega við að fá á sig mark. Um miðjan hálfleikinn átti Reynir Óskars góða sendingu á Hjört Leó Guðjónsson sem tók boltann á lofti og klippti hann í netið, eins og hann hafði lofað daginn áður. Frábært mark hjá Hirti og var það svolítið í Brasilískum anda.


Þegar lítið var eftir af hálfleiknum átti Jakob Alf góðan sprett upp vinstri og kom með góðan kross, sem Steinar Sigurjóns framlengdi á Þorstein Daníel Þorsteinsson sem smellti boltanum í netið. Mjög flott mark og strákarnir því að ganga til hálfleiks með yfirhönd gegn Brasilíska liðinu. Í seinni hálfleik var leikurinn í góðu jafnvægi og hélt vörnin áhlaupum Brassana og stjórnaði Albert Eiríksson vörninni eins og herforingi. Brassanir áttu tvö bestu færi hálfleiksins, fyrst varði Gunnar Már Hallgrímsson frábærlega einn gegn varnarmanni og svo stuttu seinna brutust þeir aftur í gegn og komst einn þeirra einn á móti markmanni og lek á hann og skoraði mjög flott mark hjá þeim eftir gott spil.


Leikurinn endaði því 2-2 og þurfti góður dómari leiksins því að grípa til vítaspyrnukeppni. Hér að neðan verður greint frá hveri spyrnu í stuttum setningum. 2-3 Brassar skoruðu. 2-3 Markús skaut yfir. 2-4 Brassi skoraði. 3-4 Sindri Rúnars skoraði. 3-4 Brassi skaut í slá. 3-4 Þorsteinn Daníel skaut í slá. 3-4 Brassi skaut í slá. 4-4 Steinar Sigurjóns skoraði. 4-5 Brassi skoraði. 5-5 Albert Eiríksson skoraði. 5-6 Brassi skoraði. 6-6 Albert Rútsson skoraði. 6-7 Brassi skoraði. 7-7 Jakob Alf Arnarsson skoraði. 7-7 Gunnar varði frá Brassa. 8-7 Fúsi skoraði og tryggði Selfoss í 16 liða úrslit. Glæsilegur leikur hjá strákunum og árangurinn frábær.


Það er því ljóst að U-16 Selfoss mætir Texas Texas Longhorns frá Bandaríkjunum á eftir og kemur nánari umfjöllun um þann leik vonandi á morgun.


Tómas.

Á næstunni


olismot.is set.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta