Eins og undanfarin sumur hefur KSÍ verið með frí í leikjum sínum á Íslandsmótinu hjá yngri flokkum vikuna fyrir verslunarmannahelgi og vikuna eftir verslunarmannahelgi. Þetta hefur mælst vel fyrir og knattspyrnufjölskyldur farnar að miða sumarfríið við þennan tíma. Fríið hjá knattspyrnukrökkum byrjar í dag miðvikudaginn 28. júlí og hefjast æfingar aftur mánudaginn 9. ágúst.
Með von um gott frí hjá öllum, bæði iðkendum og fjölskyldum þeirra. Þó minna þjálfarar á að gott er að hafa boltann nálægt í fríinu því æfingin skapar jú meistarann. Hafið samband við þjálfara ef eitthvað er óljóst.
Með bestu kveðjum
Þjálfarar og unglingaráð knattspyrnudeildar Selfoss
Tómas.
