Beint á leiđarkerfi vefsins

Knattspyrna

Knattspyrna - RSS

16.8.2010 | Knattspyrna

Nýr ađalvöllur vígđur gegn Keflavík á fimmtudag

Selfyssingar taka á móti Keflavík í 16. umferð Íslandsmótsins á fimmtudaginn. Þetta er risa leikur fyrir Selfyssinga, því nýr og fullkominn aðalvöllur ásamt glæsilegri 750 manna áhorfendastúku verður tekinn í notkun. Er þetta fyrsti áfangi stúkubyggingarinnar. Ekki nóg með þetta allt, heldur verður þetta einnig fyrsti sjónvarpsleikur Selfyssinga. Það verður því dúndrandi partý á Selfossvell fimmtudaginn 19. ágúst og mun dómari leiksins flauta leikinn á kl 19.15.

Fyrir 20 árum síðan vígðu Selfyssingar grasvöllinn sinn með 5-1 sigri á KS frá Siglufirði, með tveimur mörkum frá nöfnunum Heimi Karlssyni og Salih Heimi Porca og einu frá Sævari Sverrissyni. Það væri nú ekki leiðinlegt að endurtaka þann leik og sigra Keflvíkinga í vígsluleik aðalvallarins.

Í síðasta leik Selfoss í deildinni, þar sem þeir töpuðu 3-2 fyrir Stjörnunni, var Gunnar Borgþórsson aldursforseti liðsins en hann er 28 ára gamall. Í þessum sama leik vantaði nokkra lykilleikmenn Selfoss. Henning og Jón Sveins hafa verið frá meira og minna í allt sumar, hafa einungis náð einum og þremur leikjum. Ingó Tóta hefur einnig verið frá í nokkra leik, en kemur aftur inn nú. Sævar Þór var að jafna sig á höfuðhöggi. Bóló Be Herve var í banni og Jón Guðbrands forfallaðist á síðustu stundu. Svo fór fyrirliðinn Stefán Ragnar útaf meiddur eftir 13 mínútna leik, en ætti að verða orðin góður fyrir næsta leik.

Það er hundleiðinleg staðreynd að hvergi finnast heimildir um sigur Selfyssinga á Keflvíkingum. Liðin hafa leikið alls 14 leiki í skráðum leikjum á vegum KSÍ. Tölfræðin er 10-4-0 , sem sagt 10 sigrar Keflavík og 4 jafntefli. Það er þó þannig að alltaf styttist í fyrsta sigur Selfoss og það vita Keflvíkingar best allra. 

Árið 1990 léku Selfyssingar þrjá leiki við Keflvíkinga. Liðin léku saman í 2. deildinni eða b-deild, sem nota bene hét þá Pepsideildin eftir feitan samstarfssamning á milli samtaka 2. deildarfélaga og Sanitas sem þá seldi Pepsi á Íslandi.

Keflavík vann fyrri leikinn 2-1, þar sem Páll Guðmundsson skoraði mark Selfoss. Seinni leikur í deild fór 0-0 og misstu þar með bæði lið af möguleika á að leika í efstu deild árið ´91.

Liðin mættust einnig í 8 liða úrslitum bikarins árið ´90. Í framhjáhlaupi er nauðsynlegt að minnast á það að Keflvíkingar slógu út Ernina frá Selfossi á leið sinni í 8 liða úrslit. Mörk Ernis, sem alltaf léku í 4. deild, skoruðu Helgi Ketilsson og Gústaf Bjarnason f.v landsliðsmaður í handbolta. Ernir leiddu 2-1 þegar lítið var eftir, en Keflvíkingar skoruð 2 mörk á lokmínútunum og komust þannig áfram. Mörk Keflvíkinga gegn Örnunum skoruðu þeir Óli Þór Magnússon 2 og Gestur Gylfason 1 mark. Í 8 liða úrslitum voru Selfyssingar mjög óheppnir að vinna ekki Keflavík. Guðjón Þorvarðarson kom Selfoss yfir á 12. mínútu og svo varði Ólafur Pétursson nokkrum sinnum mjög vel og m.a. var bjargað á línu frá Salih Heimi Porca. Leikurinn jafnaðist svo í seinni hálfleik og á 53. mín jafnaði Ólafur Þór Magnússon fyrir ÍBK. Gestur Gylfa kom þeim svo yfir áður en Izudin Daði Dervic jafnaði fyrir Selfoss. Jóhann Magnússon gerði svo út um leikinn með laglegu marki 8 mín fyrir leikslok og Keflavík komst í 4 liða úrslit.

Anton Hartmannsson var varamarkmaður Keflavíkur eitt tímabil áður en hann hætti, en Toni er næst leikjahæsti leikmaður Selfoss frá upphafi með 366 leiki. Einar Ottó sonur hans tók einnig eitt tímabil með 2. flokki Keflavíkur, en sá svo að sér kom heim og hefur nú leikið hátt í 200 leiki fyrir Selfoss. Fleiri leikmönnum muna menn ekki eftir sem skipt hafa á milli þessara liða.

Líklegt byrjunarlið Selfoss er: Jóhann Ólafur, Martin Dohlsten, Stefán Ragnar, Agnar Bragi, Gummi Tóta, Arilíus, Gunni Borgþórs, Stepan Yao Yao, Jón Daði, Sævar Þór og Viktor Unnar. Andri Freyr er í leikbanni og verður því ekki með. Svo er auðvitað löng æfingavika framundan og því allt eins möguleiki á að einhverjir komi sterkir til baka af bekk eða úr stúkunni og vinni sér sæti í liðinu.

Líklegt byrjunarlið Keflavíkur er: Lasse Jörgensen, Guðjón Árni, Alen Sutej, Bjarni Hólm, Haraldur Freyr , Einar Orri, Hólmar Örn, Jóhann B. Guðmundsson, Magnús Sverrir, Guðmundur Steinarsson og Magnús Þórir. Paul McShane er einnig alltaf líklegur í startið og Haukur Ingi kom inn á í síðasta leik, en er örugglega ekki tilbúinn í first elleven.

Þjálfari Keflavíkur er Willum Þór Þórsson, en hann er gríðarlega hæfur þjálfari og hefur ná árangri alls staðar sem hann hefur komið. Willum byrjaði knattspyrnuþjálfaraferill sinn á að koma Þrótti upp í efstu deild á sínu fyrsta ári, árið 1996. Næst tók hann við Haukum og á fyrsta tímabili vann hann 3. deild og á öðru tímabili vann hann 2. deild. Þá var honum boðið starf hjá uppeldisklúbbi sínum KR árið 2001, en þá um haustið rétt slapp KR við fall. Willum gerði liðið að Íslandsmeisturum á sínu fyrsta ári og endurtók svo leikinn á sínu öðru tímabili. Fyrir tímabilið 2005 tók hann við Val og gerði hann þá að Íslandsmeisturum árið 2007 og lauk þar með 20 ára bið Valsmanna eftir titlinum. Einnig gerði hann liðið að bikarmeisturum. Inn í þessari umfjöllun eru ekki taldir upp minni titlar svo sem Reykjavíkurmeistarar o.s.frv.

Keflvíkingar hafa ekki unnið efstu deild síðan 1973 og réðu Willum Þór til starfa fyrir þetta tímabil með það í huga. Liðið er sem stendur í 4. sæti deildarinnar og gætu alveg blandað sér í toppbaráttuna og sérstaklega ef þeir myndu skora fleiri mörk. Willum hefur þjálfað Gumma Ben núverandi þjálfara Selfyssinga í alls sjö leiktímabil og því allt eins líklegt að Gummi viti betur en Willum hvað sagt verður í búningsklefa  Keflavíkur fyrir leik og í hálfleik.

Heimasíða Keflavíkur er mjög góð, fullt af upplýsingum og fréttaveita góð. Það er til eftirbreytni umfjöllun þeirra um leiki og ekki ólíklegt að hún verði tekin upp á okkar síðu, en þeir taka úrdrátt af síðum sem fjalla um leikina og birta einkunnargjafir þeirra. Hér er hægt að komast inn á heimasíðu þeirra, reyndar vantar spjallborð, en hér og hér hefur verið gerð heiðarleg tilraun til að gera spjallborð. 


Dómari leiksins á fimmtudag er klárlega að verða einn besti dómari landsins, en það er Gunnar Jarl Jónsson og ekki eru aðstoðardómararnir af verri endanum, en það eru þeir Smári Stefánsson og Sverrir Gunnar Pálmason. Guðmundur Sigurðsson er svo eftirlitsmaður á þessum leik.

Veðrið verður að venju gott á leikdag á Selfossi. Það verður ca. 14 stiga hiti, þurrt, léttskýjað og austan 3 metrar á sekúndu.

Tómas.


Á nćstunni


olismot.is set.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta