Beint á leiđarkerfi vefsins

Knattspyrna

Knattspyrna - RSS

22.8.2010 | Knattspyrna

Fram-Selfoss kl 18.00 á mánudag

Á mánudag mæta Selfyssingar í Laugardalinn og þar taka á móti þeim, á sjálfum þjóðarleikvanginum,Framarar. Fram tapaði fyrir KR í síðustu umferð á meðan Selfyssingar kenndu landsmönnum hvernig á að vígja nýja velli og unnu Keflavík 3-2 eftir að hafa verið 0-2 undir í hálfleik. Eftir þennan sigur eru Selfyssingar í 11. sæti Pepsideildar með 14 stig, en Fram er í því 8. með 20 stig. Heimasíða Selfoss vill sérstaklega benda á breyttan leiktíma vegna birtuskilyrða á norðurhveli jarðar, en nú og í næstu leikjum munu leikir hefjast kl 18.00.

 


Er Selfyssingar mættu Keflavík í síðustu umferð höfðu þeir aldrei unnið þá í leik á vegum KSÍ og það sama er upp á teningnum nú gegn Fram. En Selfyssingar eru í því að brjóta múra þessi árin og ætti sigur í Laugardalnum að vera sársaukalaus með öllu. Selfoss og Fram hafa einungis leikið 4 leiki á vegum KSÍ og er  tölfræðin 3-1-0 Fram í vil.

 


Lið Selfoss og Fram hafa mæst tvívegis í Lengjubikarnum á s.l tveimur undirbúningstímabilum. Liðin mættust í Egilshöll í ár, þar sem Fram vann 3-1, hér er hægt að lesa umfjöllun um þann leik. Liðin áttust einnig við á Selfossvelli fyrir rúmlega ári síðan og sá leikur endaði 1-1. Hægt er hægt að lesa umfjöll um þann leik hér. Fyrri leikur liðana í deildinn endaði með 1-2 sigri Fram þar sem Jón Guðbrandsson kom Selfyssingum yfir. Hér má sjá leikskýrslu frá þeim leik.

 


Nokkrir leikmenn og þjálfarar hafa komið við sögu hjá báðum liðum. Sumarliði Guðbjartsson markahrókurinn mikli spilaði í eitt ár með Fram, eins og fyrsti unglingalandsliðsmaður Selfyssinga Gylfi Þ. Gíslason. Ingó Tóta spilaði 9 leiki með Fram í 1. deildinni áður en hann kom aftur heim á Selfoss. Halldór Björnsson markmannsþjálfari var eitt tímabil á „bekknum“ hjá Fram og varð bikarmeistari með þeim. Kjartan Sigurðsson núverandi leikmaður Selfoss tók 2. flokkinn með Fram áður en hann kom aftur í sveitina. Jón Guðni Fjóluson leikmaður Fram og verðandi atvinnumaður í knattspyrnu á næstu dögum hefur ekki ennþá leikið með Selfyssingum, en var þó í Knattspyrnuakademíu Íslands á Selfossi. Glöggir lesendur sjá strax ósamræmið í þessu því allir þessir leikmenn hafa farið frá Selfossi í Fram. En til að gæta sanngirni þá borguðu Framarar okkur með Hlöðveri Erni Rafnssyni, sem reyndar náði ekki að spila með Selfoss, en hefur látið margt annað gott af sér leiða fyrir knattspyrnu á Selfossi.

 


Síðustu sex leikir liðana líta svona út, síðasti leikur talin upp aftast.
Selfoss                  J-T-T-S-T-S
Fram                      T-T-T-S-T-T

 


Líklegt byrjunarlið Selfoss er: Jóhann Ólafur, Martin, Agnar Bragi, Jón Guðbrands, Gummi Tóta, Gunni Borgþórs, Stepan Yao Yao, Arilíus, Jón Daði, Viktor Unnar og Sævar Þór. Andri Freyr kemur aftur inn eftir leikbann, en hann hefur oftast verið byrjunarliðsmaður, eins er Stefán Ragnar að jafna sig eftir meiðsli og gæti komið inn. Ottó og Viðar áttu báðir frábærar innkomur síðast og gera örugglega tilkalls til byrjunarliðssætis, en fá auðvitað ekki.

 


Líklegt byrjunarlið hjá Fram er: Hannes Þór, Daði, Jón Guðni, Kristján Hauks, Samuel Tillen, Jón Gunnar, Halldór Hermann, Tommi Leifs, Almarr, Tom Tillen og Hjálmar.   

 


Lykilleikmenn Fram eru Halldór Hermann Jónsson frá Neskaupsstað, en hann kom með Þorvaldi frá Fjarðarbyggð, Akureyringurinn Almar Ormsson, sem er frændi Þorvaldar og svo Þorlákshafnarbúinn Jón Guðni Fjóluson sem er á leið í atvinnumennsku.

 


Þorvaldur Örlygsson er á sínu 3. ári hjá Fram og hefur sýnt að hann er hörku þjálfari. Hann stýrði Fram í bikarúrslitaleikinn í fyrra og lenti í 3. og 4. sæti deildarinnar fyrri tvö árin sín hjá Fram. Þriðja árið er oft erfitt hjá þjálfurum á Íslandi, en Fram siglir nú nokkuð lygnan sjó í deildinni. Þorvaldur er íhaldssamur og hefur t.a.m einungis notað 18 leikmenn í Pepsídeildinni í ár á meðan Selfyssingar hafa notað 24 leikmenn. Áður hefur Þorvaldur þjálfað KA og Fjarðarbyggð með góðum árangri.

 


Dómari leiksins á mánudag er klárlega einn besti dómari landsins og einnig koleggi greinarhöfundar, en það er Magnús Þórisson. Magnús hefur dæmt eina þrjá leiki hjá Selfyssingum í sumar og alltaf skilað sínu hlutverki með sóma.  Honum til aðstoðar eru Ólafur Ingvar Guðfinnsson og Gunnar Sverrir Gunnarsson. Eftirlitsmaður á leiknum verður Björn Guðbjörnsson.

 


Hér er hægt að sjá heimasíðu Fram, en hún er nokkuð góð og með virkt spjallborð sem er alltaf gaman. Stemmningin er reyndar ekkert gríðarleg hjá hinu hressa Framliði eins og vel má sjá á þessari stuðningsmannasíðu þar sem næsti leikur liðsins er auglýstur gegn Keflavík þann 15. júní, eins og sjá má hér.

 


Veðrið í Lagardalnum verður fínt á mánudag. Hiti 14 stig, léttskýjað, þurrt og norð-austan 5 metrar á sekúndu.

 


Tómas.


Á nćstunni


olismot.is set.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta