Beint á leiđarkerfi vefsins

Knattspyrna

Knattspyrna - RSS

27.8.2010 | Knattspyrna

Selfoss - Valur á mánudag kl. 18.00

Þá er komið að því að bjóða Gulla Jóns í heimsókn með lærisveina sína frá Hlíðarenda. Eins og flestir vita kom Gulli liði Selfoss upp í efstu deild í fyrra en hvarf síðan á braut og tók við Val. Þetta er því fyrsta heimsókn Gulla á Selfossvöll. Leikurinn er klukkan 18.00 mánudaginn 30. ágúst. Fyrir leik eða kl. 17.30 munu þjálfarar liðanna, þeir Guðmundur Benediktsson og Gunnlaugur Jónsson, ræða við stuðningsmenn Selfyssinga í Selinu.

Einn af frumkvöðlum Vals var séra Friðrik Friðriksson frá Hálsi í Svarfaðardal, en sá merki maður sem aldrei sóttist eftir veraldlegum eigum og sjaldan átti pening, lifði þó mjög innihaldsríku og gefandi lífi. Félagið hans var stofnað árið 1911 og eftir smá útreikning telst mér að félagið verði 100 ára á næsta ári. Þetta 100 ára afmæli virðist trufla stjórnarmenn Vals alveg óendalega mikið og langar þeim til að hampa Íslandsmeistaratitli líkt og KR gerði á sínu 100 ára afmæli.   

Um fáa leiki hefur verið talað jafn mikið af eldri kynslóðinni á Selfossi og leikinn við Val 1968, en 15 dögum eftir að Valur vann Selfoss 4-3 í æfingaleik, mættu Valsarar Benfica í Evrópukeppninni. Leikurinn fór fjörlega af stað og Selfoss komst í 2-0 eftir 8 mín og var staðan svo 3-2 fyrir Selfoss í hálfleik. Sverrir Einarsson hafði skorað öll mörk Selfoss, en samkvæmt blaðamanninum „klp“ í Reykjavík skoraði Hermann eitt marka Vals og var það heppnismark. Ég gef mér það að hér sé talað um Hemma Gunn. Blaðamaðurinn gefur vörn Vals ekki háa einkunn og segir hana hafa gert „margan Valsmanninn gráhærðan í sumar“ en aftur á móti er hann nokkuð sáttur við framlínu Valsliðsins sem átti „léttan leik þar sem boltinn gekk manna á milli“, eins og segir þar. Þetta blað sem fjallar um leikinn segir frá því að tvö marka Vals hafi verið heppnismörk og í niðurlagi greinarinnar er Selfossliðinu hampað og m.a. „sýndu að ekki er langt í komu þeirra í 1. deild“ (efstu deild). Eins og flestir vita þurftum við samt að bíða í 42 ár og biðin var þess virði.

Þessi frægi leikur er ekki skráður hjá KSÍ, enda einungis um æfingaleik að ræða. Aðeins finnast fjórir skráðir KSÍ leikir á milli þessara félaga og hefur Valur unnið þá alla. Árið 1975 unnu Valsmenn 8-0 sigur í bikarnum og svo unnu Valsmenn Selfoss 28. mars 2008 4-2 þar sem Sævar Þór og Boban skoruðu mörkin og Gummi Tóta lék sínar fyrstu mínútur með meistaraflokki. Hægt að sjá leikskýrsluna hér. Þar má sjá svart á hvítu að Gummi Ben lék fyrri hálfleikinn með Val, hvað sem honum nú gekk til með því. Nú í vetur unnu Valsmenn svo Selfyssinga 3-0 í Lengjubikarnum, þar sem tvö mörk í byrjun leiks voru dæmd af Selfyssingum og má sjá leikskýrsluna úr þeim leik hér. Svo unnu Valsmenn fyrri leik liðanna í Pepsideildinni 2-1 og því ljóst að alltaf styttist bilið á milli félaganna. Hér má sjá leikskýrslu frá þeim leik.

Nokkuð margir leikmenn hafa farið á milli félaga og flestir í rétta átt. Margfaldur Íslandsmeistari með Val Magni Blöndal þjálfaði Selfoss árin 1993 og 1994 og kom þeim upp í b deild fyrra árið. Árni Njálsson þjálfaði Selfoss einhverjum árum fyrir diskótímabilið. Valsarinn og markahrókurinn Jón Gunnar Bergsson átti frábært tímabil á Selfossi og varð mjög vinsæll hjá stuðningsmönnum. Heimir Karlsson, morgunþáttarstjórnandi á Bylgjunni, þjálfaði Selfoss árið 1990. Árið áður, þ.e. 1989, þjálfaði Valsarinn Hörður Hilmarsson lið Selfyssinga. Með Herði kom á Selfoss, Ingi Björn Albertsson en hann er eins og flestir vita tengdafaðir Gumma Ben þjálfara Selfoss. Ingi Björn varð að sjálfsögðu markakóngur Selfoss þetta tímabil með 8 mörk og hann er markahæsti leikmaður efstu deildar frá upphafi. Oftar en ekki voru fyrirsagnir dagblaðana „Þingmaðurinn skoraði“, en Ingi Björn var þingmaður og notaði sumarfríið til að leika knattspyrnu. Ingi Björn tók við liði Vals er hann yfirgaf Selfoss og náði þeim ótrúlega árangri að gera þá að bikarmeisturum öll þrjú árinn sem hann þjálfaði liðið.

Antony Carl Gregory lék með Selfossi hálft tímabil´98 og átti stóran þátt í að halda liðinu uppi, eftir að liðið hafði verið í fallsæti c-deildar undir stjórn Ólafs Jóhannessonar núverandi landsliðsþjálfara. Ámundi Sigmundsson var lykilleikmaður Selfyssinga upp úr 1980 og hann varð svo Íslandsmeistari með Val. Geir Brynjólfsson hefur einnig leikið með báðum liðum sem og Salih Heimir Porca. Kristinn Björnsson spilaði með Val og hann hefur þjálfað bæði Val og Selfoss. Gulli Jóns þjálfaði og spilaði með Selfossi í fyrra, en eins og áður sagði þjálfar hann nú Val. Viktor Unnar Illugason kom frá Val í Selfoss á miðju síðasta tímabili og hefur staðið sig mjög vel, skorað og átt þrjár stoðsendingar, en hjá Val fékk hann einungis einn leik í byrjunarliði. Svo að lokum varð Gummi Ben þjálfari Selfyssinga Íslandsmeistari með Val sem leikmaður árið 2007, en það á reyndar afskaplega vel við að Valsmenn hafi orðið meistarar árið 2007.

Síðustu 6 leikir liðana í Pepsideild og er síðasti leikur talin upp aftast.
Selfoss:                 T-T-S-T-S-T
Valur:                    J-T-T-J-S-T

Liðin eru byggð upp á mismunandi hátt og var t.d. einungis einn uppalinn Valsari í liði Vals í síðasta leik á meðan sjö leikmenn í byrjunarlið Selfoss í síðasta leik eru uppaldir og mikill meirihluti hópsins hjá Selfossi er auðvitað uppalinn þar.

Líklegt byrjunarlið Selfoss er erfitt að ráða í, þar sem þeir Jón Daði Böðvarsson og Arilíus Marteinsson eru í leikbanni. Setjum þetta svona upp: Jóhann Ólafur, Martin Dohlsten, Jón Guðbrands, Agnar Bragi, Gummi Tóta, Yao Yao, Gunnar Rafn, Einar Ottó, Ingi Rafn, Viktor Unnar og Sævar Þór. Eins er Stefán Ragnar orðinn góður af meiðslum líkt og Ingó Tóta og þeir eru auðvitað líklegir til að byrja.

Líklegt byrjunarlið Vals er 4-5-1: Kjartan, Gregg Ross, Atli Sveinn, Martin Petersen, Rúnar Már, Arnar Sveinn, Ian Jeffs, Haukur Páll, Jón Vilhelm, Þórir, Diarmuid O´Corroll. Stefán Jóhann hægri bakvörður þeirra er í banni og gæti Rúnar Már jafnvel farið þangað, en þessi miðjumaður frá Sauðarkróki spilaði sem vinstri bakvörður í síðasta leik. Gregg Ross færi þá í miðvörð, en það er hans uppáhaldsstaða og Petersen yrði aftur vinstri bakvörður. Eins gæti Baldur Ingimar auðvitað komið inn. 

Heimasíða Vals er mjög fín. Spjallborðið er eitt það virkasta hjá knattspyrnuliðum hér á landi og menn láta þar í sér heyra. Börkur er þar í fullri vinnu að svara furðulostnum stuðningsmönnum, eftir að Gaui Þórðar henti nafni sínu inn í umræðuna í vöntun sinni á athygli. Hver svo sem segir satt í þessu Gauja Þórðar-Vals máli, þá er það merkileg tilviljun að í öllum hitamálum í íslenskri knattspyrnu skuli alltaf annað hvort Gaui Þórðar eða Valur eiga í hlut. Hér er hægt að fara þar inná flotta heimasíðu Vals og hér er líka mjög góð stuðningsmannasíða.

Aðaldómari leiksins á mánudag er Örvar Sær Gíslason, en hann er einn af efnilegustu dómurum landsins og hefur m.a. fengið verkefni erlendis. Honum til aðstoðar eru þeir Gunnar Sverrir Gunnarsson og Leiknir Ágústsson.

Veðrið verður nokkuð hefðbundið á Selfossvelli á mánudag. Hiti 12 stig, þurrt, logn en reyndar verður skýjað og því toppaðstæður til að spila knattspyrnu.

Tómas.


Á nćstunni


olismot.is set.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta